Eftirtaldir gefa kost á sér til stjórnar Vodafone (Fjarskipta hf.) vegna aðalfundar sem haldinn verður fimmtudaginn 11. apríl 2013 kl. 16:00 á Hilton Reykjavík Nordica hóteli.
Framboð til aðalstjórnar:
Framboð til aðalstjórnar:
- Anna Guðný Aradóttir kt. 110156-7669
- Erna Eiríksdóttir kt. 110963-2039
- Heiðar Már Guðjónsson kt. 220472-3889
- Hildur Dungal kt. 140571-3859
- Hjörleifur Pálsson kt. 281163-4269
- Vilmundur Jósefsson kt. 240849-7399
Framboð til varastjórnar:
- Agla Elísabet Hendriksdóttir kt. 300167-5869
- Erlendur Steinn Guðnason kt. 240572-5839
Framboðsfrestur er nú útrunninn.
Í samþykktum Vodafone kemur fram að fimm skipa stjórn félagsins og tveir varastjórn. Það er því sjálfkjörið í varastjórn en kosið verður í stjórn félagsins.
Kosningafyrirkomulagið verður í formi meirihlutakosningar á milli einstaklinga sem í framboði eru í samræmi við 5. mgr. 66. gr. hlutafélagalaga þar sem engar óskir bárumst um hlutfalls- og margfeldiskosningu líkt og 16. gr. samþykkta félagsins kveða á um.
Hlutafé félagsins er 3.407.649.990 og hver hlutur er að fjárhæð kr.10 að nafnvirði. Útgefnir hlutir eru því 340.764.999 og fylgir eitt atkvæði hverjum hlut. Félagið á enga eigin hluti.