Skiptigengi í gjaldeyrisútboði


Samkvæmt tilkynningu Lánamála ríkisins þann 26. apríl sl. varðandi gjaldeyrisútboð Seðlabanka Íslands sem haldið verður á morgun kom fram að skiptigengi á fjölda eininga ríkisverðbréfa í flokki RIKS 33 0321 pr. evru byggi á hreina verðinu 103,0. Ennfremur kom fram að nánari upplýsingar um skiptaverð þ.e. verð með áföllnum vöxtum og verðbótum myndi liggja fyrir í dag eftir birtingu Hagstofu Íslands á neysluverðsvísitölu fyrir apríl.

Ákveðið hefur verið að skiptigengi á fjölda eininga ríkisverðbréfa pr. evru byggist á útboðsverðinu og föstu verði ríkisverðbréfsins, sem er 108,960348 kr. pr. eining af ríkisverðbréfinu með áföllnum vöxtum og verðbótum (e. dirty price) miðað við uppgjörsdag  3. maí 2013 (ávöxtunarkrafa 2,80%). 1

Formúlan er eftirfarandi: Skiptigengi = útboðsverð/(verð ríkisverðbréfs/100).

    

 

 1  Hreint verð (e. clean price) er 103,0.

 

 

 


Pièces jointes

Skiptigengi_RS33_30.apr.2013.pdf
GlobeNewswire