Stöðug og góð rekstrarafkoma Orkuveitu Reykjavíkur


Reykjavík, 2013-05-17 13:55 CEST (GLOBE NEWSWIRE) -- Góður rekstur Orkuveitu Reykjavíkur er að festast í sessi. Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði (EBIT) fyrstu þrjá mánuði ársins 2013 nam 5,1 milljarði króna en var 4,9 milljarðar á sama tímabili 2012. Launakostnaður og annar rekstrarkostnaður fyrstu þrjá mánuði ársins lækkaði um 8,4% frá fyrra ári. Sparnaður og aðhald í rekstri og tekjur sem halda verðgildi sínu eru því skýringar þessa stöðugleika í rekstrarafkomu Orkuveitunnar.

Árshlutauppgjör samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur var samþykkt af stjórn í dag. Það er gert í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla, IFRS.

Ytri þættir hagfelldari

Framlegð reksturs samstæðu Orkuveitunnar (EBITDA) á fyrsta fjórðungi 2013 nam 7,3 milljörðum króna en var 7,2 milljarðar á sama tímabili 2012. Ytri áhrifaþættir – gengi, álverð og vextir – hafa nú jákvæð áhrif á afkomuna en þau voru neikvæð á sama tímabili í fyrra. Niðurstaða fyrsta ársfjórðungs 2013 er því hagnaður sem nemur 4,2 milljörðum króna.

Áfram er lögð áhersla á niðurgreiðslu skulda og hafa þær lækkað um 10,5 milljarða króna frá fyrra ári. Með bættri rekstrarafkomu og festu við að framfylgja Plani Orkuveitunnar og eigenda fyrirtækisins er  aðgangur Orkuveitunnar að íslenskum og erlendum fjármálamörkuðum nú smám saman að opnast. Það hefur gert fyrirtækið betur í stakk búið til að verja sig fyrir sveiflum í ytri áhrifaþáttum rekstursins; gengi krónunnar, vöxtum og álverði.

Planið

Heildarárangur Plansins á fyrsta ársfjórðungi 2013 nam 6,7 milljörðum króna, sem er 700 milljónum króna umfram markmið. Allir þættir þess voru á áætlun eða umfram hana á ársfjórðungnum. Aðgerðaáætlunin, sem stjórn Orkuveitunnar og eigendur fyrirtækisins réðust í vorið 2011, hefur nú skilað fyrirtækinu 30,5 milljörðum króna betri sjóðsstöðu en verið hefði að óbreyttu. Sé litið til heildarárangurs Plansins frá upphafi er árangurinn af því 2,4 milljarða umfram markmið. Allir þættir eru á áætlun eða umfram hana nema sala eigna.

Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitunnar:

Orkuveitan er ekki komin á lygnan sjó þó við séum farin að sjá glitta í heiðan himin. Mikilvægir áfangar hafa náðst á síðustu vikum og mánuðum og skiptir þar mestu að fyrirtækið nýtur nú trausts á alþjóðlegum fjármálamarkaði. Nýlegir lána- og áhættuvarnasamningar eru til marks um það.

Starfsfólk og stjórnendur eiga heiður skilinn fyrir staðfestu í að halda Plani. Aðgerðaáætlunin er nú rúmlega tveggja ára og hefur staðist í öllum veigamestu þáttum hennar og gott betur. Á sama tíma hefur tekist að halda uppi traustri og góðri þjónustu og við vinnum stöðugt að því að tryggja viðskiptavinum Orkuveitunnar öruggan aðgang að orku og hreinu vatni.

Rekstraryfirlit stjórnenda

Allar fjárhæðir eru í milljónum króna á verðlagi hvers árs.  

Rekstur 2008 2009 2010 2011 2012 2013
Rekstrartekjur 6.079  6.541  7.422  8.693  10.571  10.650 
Rekstrarkostnaður (2.679) (3.206) (3.189) (3.226) (3.386) (3.361)
EBITDA 3.400  3.335  4.232  5.467  7.185  7.288 
Afskriftir (1.632) (2.374) (1.952) (2.025) (2.295) (2.234)
Rekstrarhagnaður EBIT 1.769  961  2.281  3.442  4.890  5.054 
Innleystar fjármunat. og (fjármagnsgj.) (1.921) (916) (191) (431) (786) (272)
Afkoma fyrir óinnleysta fjármagnsliði (152) 45  2.090  3.011  4.104  4.781 
Óinnleystir fjármagnsliðir (20.766) 1.638  8.034  876  (9.376) (75)
Afkoma fyrir tekjuskatt skv. árshlutar. (20.919) 1.684  10.123  3.887  (5.271) 4.706 
Tekjuskattur 3.676  129  (2.936) (1.569) 1.272  (541)
Afkoma tímabilsins (17.243) 1.813  7.187  2.318  (3.999) 4.166 

 

         Nánari upplýsingar:
         Bjarni Bjarnason, forstjóri
         +354 516 7707


Pièces jointes

Framvinduskýrsla aðgerðaráætlunar 2013F1 OR.pdf Orkuveita Reykjavíkur 3m árshlutareikningur 2013.pdf
GlobeNewswire