Í maí flutti félagið 192 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 16% fleiri en á síðasta ári. Framboðsaukning á milli ára nam 24% og sætanýting var 78,7% samanborið við 82,0% á sama tíma í fyrra. Farþegum fjölgaði mest á N-Atlantshafsmarkaðinum eða um 32% og voru þeir 45% af heildarfarþegafjölda félagsins í millilandaflugi.
Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru 25 þúsund í maí og fækkaði um 11% á milli ára. Framboð félagsins í maí var dregið saman um 16% samanborið við maí 2012. Sætanýting nam 70,3% og jókst um 1,9 prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 3% á milli ára. Fraktflutningar jukust um 3% frá því á síðasta ári. Seldum gistinóttum á hótelum félagsins fjölgaði um 8% miðað við maí á síðasta ári. Herbergjanýting var 72,1% samanborið við 71,1% í maí í fyrra.
MILLILANDAFLUG | MAÍ 13 | BR. (%) | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 192.321 | 16% | 698.411 | 15% |
Sætanýting | 78,7% | -3,3 %-stig | 75,8% | -2,7 %-stig |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000) | 717.296 | 24% | 2.650.534 | 23% |
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG | MAÍ 13 | BR. (%) | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 25.108 | -11% | 121.010 | -9% |
Sætanýting | 70,3% | 1,9 %-stig | 70,3% | 2,3 %-stig |
Framboðnir sætiskm. ('000) | 11.288 | -16% | 54.957 | -13% |
LEIGUFLUG | MAÍ 13 | BR. (%) | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Flugvélanýting | 100,0% | 6,4 %-stig | 87,1% | -2,1 %-stig |
Seldir blokktímar | 2.400 | -3% | 12.009 | -9% |
FRAKTFLUTNINGAR | MAÍ 13 | BR. (%) | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Framboðnir tonnkm. (ATK´000) | 17.172 | 8% | 71.224 | 8% |
Seldir tonnkm. (FTK´000) | 8.947 | 3% | 39.066 | 3% |
HÓTEL | MAÍ 13 | BR. (%) | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Framboðnar gistinætur | 23.264 | 7% | 112.064 | 18% |
Seldar gistinætur | 16.775 | 8% | 73.514 | 19% |
Herbergjanýting | 72,1% | 1,0 %-stig | 65,6% | 0,7 %-stig |
Nánari upplýsingar veita:
Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010