Breyting á skilmálum skuldabréfaflokks FAST 1 12 útgefnum af FAST-1 slhf. Eigendur skuldabréfa útgefnum af FAST-1 slhf. og stjórn félagsins hafa samþykkt eftirfarandi breytingu á A) lið kafla um sérstakar skuldbindingar í skilmálum skuldabréfsins. Ákvæðið hljóðar svo fyrir breytingu: "Tilkynning á vanefnd: Útgefandi skuldbindur sig til að tilkynna skuldabréfaeiganda skriflega þegar í stað, ef hann verður var við að vanefndartilvik hafi orðið eins og það er skilgreint skv. skilmálum þessum. Jafnframt skuldbindur útgefandi sig til að tilkynna skuldabréfaeiganda skriflega þegar í stað vanefndartilvik vegna annarra fjárhagslegra skuldbindinga eða ef gjaldfellingarheimildir skv. öðrum skuldaskjölum verða virkar." Eftir breytingu hljóðar ákvæðið svo: "Tilkynning á vanefnd: Útgefandi skuldbindur sig til að tilkynna skuldabréfaeigendum þegar í stað, ef hann verður var við að vanefndartilvik hafi orðið eins og það er skilgreint skv. skilmálum þessum. Jafnframt skuldbindur útgefandi sig til að tilkynna skuldabréfaeigendum þegar í stað vanefndartilvik vegna annarra fjárhagslegra skuldbindinga eða ef gjaldfellingarheimildir skv. öðrum skuldaskjölum verða virkar. Opinber tilkynning í gegnum fréttakerfi NASDAQ OMX á Íslandi telst fullnægjandi tilkynning skv.ákvæði þessu." Frekari upplýsingar veitir Haukur Skúlason, stjórnarformaður FAST-1 slhf. í síma 844 4778 eða í gegnum netfangið haukur@islandssjodir.is [HUG#1790307]
Breyting á skilmálum skuldabréfaflokks FAST-1 slhf.
| Source: FAST-1 slhf.