Á aðalfundi Fjarskipta hf. þann 26. mars 2014 var samþykkt að heimila félaginu kaup á allt að 10% af eigin hlutafé þ.e. að hámarki 34.076.500 hlutum. Hver hlutur er 10 kr. að nafnvirði. Heimildin gildir í 18 mánuði frá samþykkt hennar.
Stjórn Fjarskipta hf. hefur á grundvelli fyrrgreindrar samþykktar tekið ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum og er markmið áætlunarinnar að lækka útgefið hlutafé félagsins.
Endurkaupin munu nema að hámarki [9.400.000] hlutum eða sem nemur [2,8%] af útgefnum hlutum í félaginu, en þó ekki meira en 300.000.000 kr. að kaupverði. Áætlunin verður í gildi til 28. febrúar 2015.
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans hf. mun hafa umsjón með framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar og taka allar ákvarðandir tengdar framkvæmd hennar, kaup og tímasetningu þeirra, óháð félaginu.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik, nr. 630/2005, sem ber heitið "Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga."
Kaupin verða framkvæmd í áföngum með þeim skilyrðum að kaup hvers dags muni að hámarki nema 25% af meðaltali daglegra viðskipta með hlutabréf félagsins í Kauphöll Íslands í júlí 2014, en það jafngildir að dagleg kaup mega að hámarki vera 189.367 hlutir.
Verð fyrir hvern hlut skal vera að hámarki hæsta verð í síðustu óháðu viðskiptum og hæsta fyrirliggjandi óháða boð í viðskiptakerfi NASDAQ OMX á Íslandi hf., sbr. 3. mgr. 55 gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög og 1. mgr. 5. gr. viðauka við reglugerð nr. 630/2005.
Viðskipti Fjarskipta hf. með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða tilkynnt eigi síðar en við lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara fram.
Nánari upplýsingar veitir Hrannar Pétursson, fjarfestatengsl@vodafone.is