Fjarskipti hf. : Stöðugur rekstur og mikilvægum áföngum náð


Árshlutareikningur Fjarskipta hf. fyrir 2. ársfjórðung ársins 2014 var staðfestur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 20. ágúst 2014.  

  • Tekjur jukust um 1%  á fjórðungnum - Tekjuaukning á fyrri helmingi ársins 2%
  • Framlegð hækkaði um 6% á fjórðungnum - Framlegðarhækkun 9% á fyrri helmingi ársins
  • Kostnaður vegna forstjóraskipta í maí nam 53 m.kr.
  • EBITDA ársfjórðungsins nam 671 m.kr. og lækkaði um 8% milli ára - EBITDA á fyrri helmingi ársins hækkaði um 3%
  • 210 m.kr. hagnaður á 2. ársfjórðungi - Hagnaðaraukning á fyrri helmingi ársins 49%

Stefán Sigurðsson, forstjóri:

"Rekstur Vodafone á 2. ársfjórðungi var ágætur, sérstaklega þegar tekið er tillit til mikillar innri vinnu tengdum öryggismálum og ISO 27001 vottun félagsins og kostnaðar sem féll til á tímabilinu vegna forstjóraskipta.

Samhliða styrkingu innviða voru mikilvæg skref stigin á ýmsum sviðum á tímabilinu. Nýjar vörur voru innleiddar og áfram var haldið með fjárfestingar í kerfum sem eru mikilvæg fyrir tekjuöflun Vodafone til framtíðar. Félagið hefur þannig tekið forystu í 4G þjónustu með markvissri fjárfestingu í farsímakerfinu og á sama tíma styrkt verulega sjónvarps- og útvarpsdreifikerfi Vodafone sem mun á árinu ná til 99,8% landsmanna. Þessar fjárfestingar eru mikilvægur grundvöllur  framtíðar tekjusköpunar félagsins."


Pièces jointes

Árshlutareikningur 2F 2014.pdf Fréttatilkynning 2F 2014.pdf
GlobeNewswire