Reykjavíkurborg hefur ákveðið að veita aðalmiðlurum tímabundna undanþágu á skyldum á eftirmarkaði. Þann 9. Mars 2015 er aðalmiðlurum heimilt að leggja fram kaup- og sölutilboð í viðskiptakerfi NASDAQ með tvöfalt meiri hámarksmun en kemur fram í 3. gr. gildandi samnings milli aðalmiðara og Reykjavíkurborgar vegna útgáfu skuldabréfa Reykjavíkurborgar og viðskiptavakt á eftirmarkaði. Þessi tímabundin undanþága gildir út daginn í dag.
Nánari upplýsingar veitir
Birgir Björn Sigurjónsson í síma 411 -1111.