HB Grandi hf – Niðurstöður aðalfundar haldinn 10. apríl 2015


Aðalfundur samþykkti samhljóða ársreikning félagsins

Fundurinn samþykkti eftirfarandi tillögur:

Tillaga um greiðslu arðs

Aðalfundur HB Granda hf. haldinn 10. apríl 2015 samþykkir að greidd verði 1,50 kr. á hlut í arð vegna ársins 2014, alls að fjárhæð  2.720.488.085 kr. Arðurinn verður greiddur 30. apríl 2015. Síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum er 10. apríl 2015 og arðleysisdagur því 13. apríl 2015.

Arðsréttindadagur er 14. apríl 2015 (arður greiðist þeim sem skráðir eru í hlutaskrá að loknu uppgjöri verðbréfaskráningar Íslands fyrir kl. 12:00 þann 14. apríl 2015)

Tillaga félagsstjórnar að starfskjarastefnu

Sjá viðhengi – samþykkt samhljóða

Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna

Þóknun næsta árs til stjórnarmanna verði 200.000 kr. á mánuði og formaður fái tvöfaldan hlut.

Kjör stjórnar

Kristján Loftsson, Halldór Teitsson, Hanna Ásgeirsdóttir, Rannveig Rist og Þórður Sverrisson

Kosning endurskoðanda

Endurskoðunarfélag: Deloitte ehf.

Tillaga um að stjórn fái heimild til kaupa á eigin hlutum

Aðalfundur veitir stjórn félagsins heimild til að kaupa eigin hluti í félaginu. Heimild þessi stendur í 18 mánuði og takmarkast við að samanlögð kaup fari ekki yfir 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma. Kaupgengi má eigi vera hærra en í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem hærra er.   


Pièces jointes

HB Grandi - starfskjarastefna.pdf HB Grandi hf  - niðurstöður aðalfundar 2015.pdf HB Grandi - aðalfundur ræða stjornarformanns.pdf
GlobeNewswire