Uppgreiðsla á skuldabréfaflokki OFANSV 11 1


OFAN SVÍV, fagfjárfestasjóður í rekstri Stefnis hf., gaf þann 23. desember 2011 út skuldabréfaflokkinn OFANSV 11 1, sem skráður er í Kauphöll Íslands.

 

Lántaki sjóðsins, Reginn atvinnuhúsnæði ehf., hefur í dag tilkynnt sjóðnum að hann muni nýta sér rétt til uppgreiðslu. Í samræmi við skilmála skuldabréfaflokksins myndast uppgreiðsluskylda sjóðsins á flokknum. Uppgreiðslugjald nemur 1,0% af uppreiknaðri fjárhæð þeirrar afborgunar, sem greidd er umfram hina samningsbundnu afborgun á viðkomandi gjalddaga.

 

Næsti gjalddagi er 7. júní 2015 og verður flokkurinn greiddur upp þann dag.

 

 

Frekari upplýsingar veitir Jón Finnbogason, forstöðumaður skuldabréfa hjá Stefni hf.:

S: 444 7469

GlobeNewswire