Hluthafafundur í Símanum hf. verður haldinn 8. september, 2015.


Hluthafafundur í Símanum hf. verður haldinn 8. september, 2015.

Stjórn Símans hf. boðar til hluthafafundar í félaginu og verður hann haldinn á Hilton Reykjavík Nordica þann 8. september 2015 og hefst stundvíslega kl. 15:00.

Dagskrá fundarins er svohljóðandi:

  1. Tillaga um samþykkt kaupréttaráætlunar og heimild stjórnar til þess að gefa út nýtt hlutafé.

Stjórn Símans hf. leggur til við hluthafafund, sem haldinn er þann 8. september 2015, að drög að kaupréttaráætlun verði samþykkt. Kaupréttaráætlunin byggir á 10. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt og heimilar félaginu að gera kaupréttarsamninga við starfsmenn félagsins og dótturfélaga. Drög kaupréttaráætlunar liggja fyrir fundinum og skulu vera hluti tillögu þessarar.

Samhliða er lögð fram tillaga um heimild stjórnar til þess að gefa út nýtt hlutafé, allt að kr. 850.000.000 að nafnverði til að uppfylla skyldur sem félagið kann að takast á hendur með gerð kaupréttarsamninga við starfsmenn félagsins og dótturfélaga. Kaupréttarsamningar munu byggja á kaupréttaráætlun sem gerð hefur verið á grundvelli 10. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt. Tillaga og skýringar með henni eru meðfylgjandi.

  1. Tillaga um breytingar á samþykktum félagsins

Stjórn Símans hf. leggur til við hluthafafund félagsins meðfylgjandi tillögu að breytingum á samþykktum félagsins. Stjórnin leggur til í ljósi fyrirhugaðrar skráningar hlutabréfa félagsins í Kauphöll að gerðar verði breytingar á samþykktum félagsins til samræmis við ákvæði hlutafélagalaga um hlutafélög með skráð hlutabréf. Þá eru tillögur um breytingar á samþykktum í samræmi við ályktun hluthafafundar Símans 16. apríl sl. Meðfylgjandi er tillagan og greinargerð þar sem tilteknar eru helstu breytingar frá núgildandi samþykktum.

Dagskrá og endanlegar tillögur með greinargerð ásamt öðrum gögnum sem tillögunum kunna að fylgja munu vera hluthöfum til sýnis á skrifstofu félagsins að Ármúla 25, 108 Reykjavík einni viku fyrir hluthafafund. Dagskrá og endanlegar tillögur verða auk þess aðgengilegar á heimasíðu félagsins: https://www.siminn.is/siminn/fjarfestar/stjornarhaettir/hluthafafundir/

Reykjavík, 28. ágúst 2015

Stjórn Símans hf.

Nánari upplýsingar veitir Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans í síma 550-6003.


Pièces jointes

Tillögur stjórnar og skýringar.pdf
GlobeNewswire