Islandsbanki hf.: Íslandsbanki lýkur víxlaútboði


Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á víxlum til sex og tólf mánaða. Í heild bárust tilboð upp á 5.160 m.kr. og var tilboðum tekið fyrir 1.240 m.kr.

Seldir voru víxlar til 6 mánaða að nafnverði 840 m.kr. á 5,65% flötum vöxtum.

Seldir voru víxlar til 12 mánaða að nafnverði 400 m.kr. á 5,93% flötum vöxtum.

Stefnt er á að því að víxlarnir verði teknir til viðskipta á Nasdaq Iceland 24. nóvember.

Nánari upplýsingar veita:

  • Fjárfestatengill - Tinna Molphy, ir@islandsbanki.is og í síma 440 3187.
  • Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma 440 4005.
GlobeNewswire