Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á víxlum til sex og tólf mánaða. Í heild bárust tilboð upp á 3.700 m.kr. og var tilboðum tekið fyrir 1.700 m.kr.
Seldir voru víxlar til 6 mánaða að nafnverði 1.220 m.kr. á 5,60% flötum vöxtum.
Seldir voru víxlar til 12 mánaða að nafnverði 480 m.kr. á 5,89% flötum vöxtum.
Stefnt er á að því að víxlarnir verði teknir til viðskipta á Nasdaq Iceland 15. desember.
Nánari upplýsingar veita:
- Fjárfestatengill - Tinna Molphy, ir@islandsbanki.is og í síma 440 3187.
- Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma 440 4005.