Endurfjármögnun skulda milli Landsvirkjunar og Landsnets


Landsvirkjun og Landsnet hafa komist að samkomulagi um endurfjármögnun skulda á milli félaganna. Með samkomulaginu hefur Landsnet keypt til baka öll útistandandi skuldabréf Landsnets sem gefin voru út árið 2005 og voru í eigu Landsvirkjunar.

Endurkaup Landsnets voru greidd að hluta með peningum og að hluta með nýjum lánssamningi milli félaganna í Bandaríkjadal með gjalddaga árið 2020.

Íslandsbanki var ráðgjafi Landsvirkjunar og Landsnets við endurkaup skuldabréfanna og gerð lánssamnings.

Reykjavík, 29. desember 2016 

Nánari upplýsingar veitir Rafnar Lárusson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs,
í síma 515 9000, netfang: rafnar@lv.is


Pièces jointes

2016 12 29 Frettatilkynning.pdf
GlobeNewswire