Islandsbanki hf. : Ársskýrsla og Áhættuskýrsla (Pillar 3) 2016


Íslandsbanki hefur gefið út Ársskýrslu og Áhættuskýrslu fyrir árið 2016. Í skýrslunum má finna áhugaverðar upplýsingar um starfsemi bankans og stefnu.

Áhættu- og Ársskýrsla Íslandsbanka 2016

Ársskýrsla 2016

Ársskýrsla Íslandsbanka er yfirgripsmikil samantekt um starfsemi bankans. Þar má sjá hvernig skýr stefna, framþróun og góður rekstur hefur skapað Íslandsbanka árangursríka aðgreiningu á bankamarkaði.

Góður árangur náðist í rekstri bankans á síðasta ári en bankinn var meðal annars valinn besti bankinn á Íslandi af bæði The Banker og Euromoney. Fjórða árið í röð eru viðskiptavinir bankans einnig þeir ánægðustu samkvæmt Íslensku ánægjuvoginni .

Á síðasta ári kynnti bankinn framsæknar lausnir fyrir viðskiptavini sem einfalda þeim bankaviðskiptin. Má þar nefna greiðslumiðlunarappið Kass, sem á dögunum var valið besta appið á Íslandi, og netgreiðslumatið sem flýtir umsóknarferlinu um húsnæðislán.

Skýrslan fjallar einnig um stefnuáherslur bankans, sem eru margföldun, einföldun og heildun, hvernig þær styðja við framtíðarsýnina um að vera #1 í þjónustu og hafa áhrif á alla starfsemi bankans. 

  • Margföldun - leggur áherslu á að efla viðskiptatengsl við núverandi viðskiptavini og auka verðmætasköpun
  • Einföldun - leggur áherslu á skilvirkni og hagkvæmni
  • Heildun - leggur áherslu á að vera fyrirmynd í umhverfinu með stefnu bankans í samfélagslegri ábyrgð 

Áhættuskýrsla 2016

Samhliða ársskýrslu er gefin út sérstök Áhættuskýrsla sem veitir markaðsaðilum upplýsingar sem ætlað er að auka skilning á áhættustýringu bankans, eiginfjárstöðu hans, sem og lausafjárstöðu. Í skýrslunni kemur meðal annars fram að Íslandsbanki uppfyllti allar innri og ytri kröfur um áhættumörk á árinu 2016 og helst lausafjár- og eiginfjárstaða bankans sterk.


Öflugur hópur starfsmanna bankans kom að gerð þessara tveggja stóru ársrita en er það von bankans að þær veiti góða innsýn í rekstur bankans fyrir viðskiptavini og aðra hagaðila.

Hægt er að nálgast bæði Ársskýrslu og Áhættuskýrslu sem viðhengi, en einnig má finna allar fjárhagsupplýsingar á vef fjárfestatengsla Íslandsbanka, www.islandsbanki.is/ir.

Nánari upplýsingar veita:

  • Fjárfestatengill - Tinna Molphy,  tinna.molphy@islandsbanki.is og í síma 440 3187.
  • Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, edda.hermannsdottir@islandsbanki.is og í síma 440 4005.
Attachments:

http://www.globenewswire.com/NewsRoom/AttachmentNg/9588782e-343e-42f3-b16c-1de4c2e53974

Attachments:

http://www.globenewswire.com/NewsRoom/AttachmentNg/4784a1e5-69b3-44db-8488-2fb4695bf23d

Attachments:

http://www.globenewswire.com/NewsRoom/AttachmentNg/e6b6399c-ac11-4ef8-9967-2c8d7b8a27e4


Pièces jointes

Áhættuskýrsla Íslandsbanka 2016 - Pillar 3 - Excel gröf og töflur.xlsx Áhættuskýrsla Íslandsbanka 2016 - Pillar 3.pdf Ársskýrsla Íslandsbanka 2016.pdf
GlobeNewswire