Islandsbanki hf.: Íslandsbanki lýkur víxlaútboði


Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á víxlum til 12 mánaða. Í heild bárust tilboð upp á 1.600 m.kr. og var tilboðum tekið fyrir 420 m.kr.

Seldir voru víxlar til 12 mánaða að nafnverði 420 m.kr. á 5,41% flötum vöxtum. Heildartilboð voru 1.600 m.kr. á bilinu 5,34% - 5,55%.

Stefnt er á að því að víxlarnir verði teknir til viðskipta á Nasdaq Iceland 12. apríl.

Nánari upplýsingar veita:

  • Fjárfestatengill - Tinna Molphy, ir@islandsbanki.is og í síma 440 3187.
  • Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma 440 4005.
GlobeNewswire