Islandsbanki hf.: Útboð á víxlum 16. maí


Íslandsbanki hf. verður með víxlaútboð þriðjudaginn 16. maí 2017. Boðnir verða út 6 mánaða flokkurinn ISLA 17 1121 og 12 mánaða flokkurinn ISLA 18 0522.

Verðbréfamiðlun Íslandsbanka hefur umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á tölvupóstfangið vbm@isb.is fyrir kl. 16:00 þann 16. maí en greiðslu- og uppgjörsdagur er 23. maí 2017.

Nánari upplýsingar veita:

  • Fjárfestatengill - Tinna Molphy, ir@islandsbanki.is og í síma 440 3187.
  • Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma 440 4005.
GlobeNewswire