Vátryggingafélag Íslands hf. mun birta uppgjör annars ársfjórðungs ársins 2017, fimmtudaginn 24. ágúst n.k. eftir lokun markaða.
Opinn kynningarfundur um afkomu félagsins verður haldinn föstudaginn 25. ágúst nk., kl. 08:30 í höfuðstöðvum VÍS, Ármúla 3. Boðið verður upp á kaffi og meðlæti frá kl. 08:15.
Helgi Bjarnason, forstjóri, mun kynna afkomuna og svara spurningum.
Bein útsending frá fundinum verður á vefsíðu félagsins: vis.is/vis/fjarfestar/fjarfestar/. Þar verður einnig hægt að nálgast kynningarefni vegna fundarins.