REYKJAVIK, Ísland, Feb. 27, 2018 (GLOBE NEWSWIRE) -- Leiðandi hagvísir Analytica (e. Composite Leading Indicator) hækkaði í janúar sjötta mán. í röð, nú um 0,3%. Vísbendingar eru um að hagvöxtur aukist á ný snemma á þessu ári.
Allir sex undirliðir hækka frá í desember. Mesta framlag til hækkunar mælist í verðmæti fiskafla. Langtímauppleitni mikilvægra undirþátta er enn sterk. Áfram eru áhættuþættir í ytra umhverfi sem ógnað gætu hagvexti einkum tengdir stöðunni í alþjóðastjórnmálum. Þá er talsverð óvissa í tengslum við kjaramál en deilur í þeim efnum gætu breytt horfum til hins verra.
Hagvísirinn er vísitala sem gefur vísbendingu um efnahagsumsvif að sex mánuðum liðnum. Það er hlutverk vísitölunnar að veita skýra sýn á efnahagshorfur og vara tímanlega við viðsnúningi í efnahagsumsvifum. Vísitalan er reiknuð á grundvelli sömu aðferðafræði og annars staðar þar sem sambærilegar vísitölur eru reiknaðar en sérstaklega er tekið mið af verklagi OECD.
Leiðandi hagvísir Analytica er samansettur úr sex undirþáttum af mismunandi toga. Um er að ræða aflamagn, debetkortaveltu, ferðamannafjölda, heimsvísitölu hlutabréfa, innflutning og væntingavísitölu Gallup. Í janúar hækka fjórir af sex undirþáttum frá fyrra ári. Frá í des. hækka allir sex undirþættir.
Hugmyndin að baki vísitölunni er sú að framleiðsla hefur aðdraganda. Vísitalan er reiknuð á grundvelli þátta sem mælast í upphafi framleiðsluferilsins og/eða veita vísbendingar um eftirspurn eftir vörum og þjónustu. Til að unnt sé að auka framleiðslu þarf t.d. að afla aðfanga og stofna til fjárfestinga.
Leiðandi hagvísir Analytica hækkar um 0,3% í janúar og tekur gildið 102,2, sjá töflu 1. Sú tala á að gefa vísbendingu um framleiðslu sex mánuðum síðar þ.e. í júlí 2018. Hagvísirinn tekur gildið 100 þegar búist er við að landsframleiðsla sé í takt við langtímaleitni.
Tafla 1. Leiðandi hagvísir Analytica 2017-2018 | |||||||
Breyting (%) | Vísbend- | ||||||
Vísitala | í mánuði | frá fyrra ári | ing fyrir | ||||
2017 | |||||||
janúar | 99,4 | -0,3 | % | -1,5 | % | júlí 2017 | |
febrúar | 99,4 | 0,0 | % | -1,5 | % | ágúst | |
mars | 99,5 | 0,0 | % | -1,4 | % | sept. | |
apríl | 99,3 | -0,2 | % | -1,5 | % | okt. | |
maí | 99,0 | -0,3 | % | -1,8 | % | nóv. | |
júní | 98,6 | -0,3 | % | -2,0 | % | des. | |
júlí | 98,6 | -0,1 | % | -2,1 | % | jan. 2018 | |
ágúst | 99,0 | 0,5 | % | -1,6 | % | feb. | |
september | 99,8 | 0,8 | % | -0,7 | % | mars | |
október | 100,7 | 0,8 | % | 0,3 | % | apríl | |
nóvember | 101,4 | 0,7 | % | 1,3 | % | maí | |
desember | 101,8 | 0,5 | % | 2,1 | % | júní | |
2018 | |||||||
janúar | 102,2 | 0,3 | % | 2,8 | % | júlí |
Birting leiðandi hagvísis Analytica fyrir febrúar er áformuð 19/3 2018.
Nánari upplýsingar veitir Yngvi Harðarson hagfræðingur
Sími: 527 8890 - Tölvupóstur yngvi@analytica.is