Reykjavík, miðvikudagur, 1. júní, 2018 -- Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) gefur út viðskiptayfirlit mánaðarlega fyrir kauphallir sínar á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum. Helstu atriði úr viðskiptayfirliti Nasdaq Iceland (Kauphallarinnar) fyrir maí 2018 eru eftirfarandi:
Hlutabréf:
- Heildarviðskipti með hlutabréf í maí námu 42.251 milljón eða 2.113 milljónum á dag. Það er 4% hækkun frá fyrri mánuði, en í apríl námu viðskipti með hlutabréf 2.041 milljón á dag. Þetta er 39% lækkun á milli ára (viðskipti í maí 2017 námu 3.456 milljónum á dag).
- Mest voru viðskipti með bréf Marel (MARL), 8.572 milljónir, Icelandair Group (ICEAIR), 4.361 milljón, Haga (HAGA), 3.796 milljónir, Reita fasteignafélags (REITIR), 3.748 milljónir, og Símans (SIMINN), 3.050 milljónir.
- Úrvalsvísitalan (OMXI8) lækkaði um 2,5% á milli mánaða og stendur nú í 1.725 stigum.
- Á Aðalmarkaði Kauphallarinnar var Arion banki með mestu hlutdeildina, 26,5% (27,5% á árinu), Landsbankinn með 21,7% (19,8% á árinu), og Íslandsbanki með 20,0% (13,4% á árinu).
- Í lok maí voru hlutabréf 22 félaga skráð á Aðalmarkaði og Nasdaq First North á Íslandi. Nemur heildarmarkaðsvirði skráðra félaga 870 milljörðum króna (samanborið við 882 milljarða í apríl). Ein nýskráning átti sér stað í mánuðinum en hlutabréf Heimavalla voru skráð á Aðalmarkaðinn 24. maí.
Skuldabréf:
- Heildarviðskipti með skuldabréf námu 80,3 milljörðum í síðasta mánuði sem samsvarar 4,0 milljarða veltu á dag. Þetta er 13% lækkun frá fyrri mánuði (viðskipti í apríl námu 4,6 milljörðum á dag), og 8% lækkun frá fyrra ári (viðskipti í maí 2017 námu 4,4 milljörðum á dag).
- Alls námu viðskipti með ríkisbréf 66,5 milljörðum, viðskipti með bankabréf námu 8,4 milljörðum, og viðskipti með íbúðabréf námu 2,1 milljarði. Mest voru viðskipti með RIKH 18 1009, 10,3 milljarðar, RIKB 20 0205, 10,1 milljarður, RIKB 22 1026, 9,1 milljarður, RIKB 25 0612, 8,3 milljarðar, og RIKB 28 1115, 7,8 milljarðar.
- Á skuldabréfamarkaði var Arion banki með mestu hlutdeildina 19,1% (15,0% á árinu), Íslenskir fjárfestar með 18,8% (12,0% á árinu), og Landsbankinn með 15,4% (17,1% á árinu).
- Aðalvísitala skuldabréfa (NOMXIBB) lækkaði um 0,1% í maí og stendur í 1.377 stigum. Óverðtryggða skuldabréfavísitala Kauphallarinnar (NOMXINOM) hækkaði um 0,6% en sú verðtryggða (NOMXIREAL) lækkaði um 0,3%.
Sjá myndir í viðhengi fyrir hlutdeild kauphallaraðila á hlutabréfa- og skuldabréfamarkaði.
Fyrir frekari upplýsingar um tölfræði og tölfræðiáskrift sjá http://www.nasdaqomx.com/transactions/markets/nordic/statistics
#
Um Nasdaq
Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) er leiðandi á alþjóðavísu í þjónustu á sviði verðbréfaviðskipta, kauphallartækni, eftirlits, skráninga, upplýsingaþjónustu og þjónustu við skráð fyrirtæki í sex heimsálfum. Nasdaq gerir viðskiptavinum sínum kleift að skipuleggja, hagræða og framkvæma framtíðarsýn sína í viðskiptum af öryggi, með margreyndri tækni sem veitir gagnsæi og innsýn í nútíma alþjóðlega fjármálamarkaði. Nasdaq er frumkvöðull í rafrænum kauphallarviðskiptum, en tækni þess er notuð á yfir 90 mörkuðum í 50 löndum og knýr um það bil ein af hverjum 10 viðskiptum í heiminum. Nasdaq er heimili meira en 3,900 skráðra fyrirtækja að markaðsvirði yfir 13 billjón Bandaríkjadala. Fyrir meiri upplýsingar, heimsæktu http://business.nasdaq.com/
Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur
Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur sem gerðar eru samkvæmt svonefndum Safe Harbor ákvæðum í bandarískum verðbréfalögum frá 1995 (Private Securities Litigation Reform Act of 1995). Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um afurðir og þjónustu Nasdaq. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem Nasdaq hefur ekki stjórn á. Þessir þættir byggjast á en takmarkast þó ekki við þætti sem gerð er grein fyrir í ársskýrslu Nasdaq á svonefndu Form 10-K og árshlutaskýrslum sem sendar eru til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur.
Nasdaq Nordic lýsir sameiginlegri þjónustu Nasdaq Copenhagen, Nasdaq Helsinki, Nasdaq Iceland og Nasdaq Stockholm.
Fjölmiðlasamskipti:
Kristín Jóhanns
kristin.johannsdottir@nasdaq.com
8689836