Stjórn Eimskips ákvað í dag að höfða almennt einkamál gegn Samkeppniseftirlitinu þar sem þess verður krafist að rannsókn stofnunarinnar, sem staðið hefur yfir í um tíu ár, verði dæmd ólögmæt og henni hætt. Eimskip hefur áður lagt fram kröfu af sama meiði á grunni ákvæða laga um meðferð sakamála, en dómstólar féllust ekki á að unnt væri að reka málið gegn Samkeppniseftirlitinu á þeim lagagrundvelli. Þar sem dómstólar tóku hins vegar ekki efnislega afstöðu til þeirra röksemda félagsins sem málsóknin var reist á, var tekin ákvörðun um að höfða almennt einkamál til að fá úr þeim skorið. Um röksemdir fyrir kröfunni vísast til fréttatilkynningar félagsins frá 30. júní sl.
Stefnan mun verða birt Samkeppniseftirlitinu á næstu dögum.
Nánari upplýsingar veitir Edda Rut Björnsdóttir, markaðs- og samskiptastjóri í síma 825-3399 eða investors@eimskip.is