Fljótsdalshérað - Fjárhagsáætlun 2020 og þriggja ára áætlun 2021 - 2023


Fjárhagsáætlun 2020 – 2023

Hjálögð tillaga fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020 ásamt 3ja ára áætlun fyrir 2021-2023 lögð fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs á fundi þann 6. nóvember 2019 og er byggð á grunni þess fjárhagsramma sem nefndum  sveitarfélagsins var ætlað að laga sig að í endanlegri áætlanagerð.  Seinni umræða mun samkvæmt áætlun fara fram miðvikudaginn 20. nóvember 2019

Lykilmarkmið bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs undanfarin ár:

  • Jafnvægi skal vera á milli samanlagðra rekstartekna og gjalda A- og B-hluta á hverju þriggja ára tímabili.
    • Samkvæmt fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2020 er rekstarjöfnuður áranna 2018-2020 jákvæður um 881 millj. kr.  fyrir samstæðu  A- og B- hluta og 507 millj. kr í A hluta fyrir sama tímabil.
  • Framlegð rekstrar (niðurstaða fyrir afskriftir og fjármagnsliði) skal vera á bilinu 15 – 20%.

o    Samkvæmt fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2020 verður framlegðarhlutfall A-hluta 13,8% og í samstæðu A og B hluta verður framlegðarhlutfall 20,4%.

  • Veltufé frá rekstri A- og B-hluta nemi ekki lægri fjárhæð en sem nemur afborgunum og vöxtum af langtímalánum.

o    Samkvæmt fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2020 mun veltufé frá rekstri nema 869 millj. kr. en afborganir af skuldbindingum verða um 555 millj. kr. í samstæðu A og B hluta.  Í A hluta nemur veltufé frá rekstri um 532 millj. kr. en greiðslur vegna skuldbindinga nema um 385 millj. kr.

  • Skuldir og skuldbindingar samstæðu (A- og B-hluta) fari ekki yfir 250% af skilgreindum tekjum.
    • Samkvæmt fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2020 verður skuldaviðmið samstæðu A og B hluta skv. reglugerð 121% í árslok og er undir þeim viðmiðunum sem kröfur eru gerðar um skv. Sveitarstjórnarlögum.
    • Skuldahlutfall  A-hluta í árslok 2020 verður 107,4% og í  samstæðu fyrir A og B hluta nemur skuldahlutfallið um 156%. 
    • Árið 2023 er skuldahlutfall samstæðu A og B hluta áætlað að verði um 125%.   Skuldahlutfall A hluta er áætlað að verði 86%  í árslok 2023.
  •  Skuldahlutfall A hluta, sem er hinn eiginlegi sveitarsjóður, fór niður fyrir 150% á árinu 2016.
  • Skuldaviðmið samstæðu A og B hluta fór niður fyrir 150% á árinu 2018 samkvæmt ársreikningi.

Helstu niðurstöður fjárhagsáætlunar 2020-2023

  • Rekstarafkoma A og B hluta samkvæmt fyrirliggjandi áætlun er jákvæð á árinu 2020 um 365 millj. kr.  Þar af er afkoma af rekstri A hluta jákvæð um 205 millj. kr.
     
  • Skatttekjur hækka um 192 millj. kr. á milli áranna 2019 og 2020 og nema 3.999 millj. kr. sem er 5% hækkun.
     
  • Útsvarstekjur nema 2.141 millj. kr. og hækka um 6,5% miðað við útkomuspá fyrir árið 2019.  
     
  • Áætlað er að fasteignaskattur nemi um 455 millj. kr. sem er 8,9% hækkun frá 2019.
     
  • Framlög Jöfnunarsjóðs  nema 1.363 millj. kr. sem er 1,8% hækkun frá áætlaðri útkomu 2019.
     
  • Innri leiga á málaflokka í rammaáætlun hækkar almennt um 2% frá áætlun ársins 2019.
     
  • Í útkomuspá launa fyrir árið 2019 er áætluð niðurstaða um 2.511 millj. kr. en verða um 2.657 millj. kr. á árinu 2020 sem gerir um 5% hækkun á milli ára.  Stöðugildi eru áætluð um 287 á árinu 2020 samanborið við 280 árið 2019.
     
  • Framlegð (EBITDA) í A hluta er áætluð 627 millj. kr. eða 13,8% og í samstæðu A og B hluta er framlegð áætluð 1.025  millj. kr. eða 20,4%.

Fjármagnsliðir:
Í forsendum fjárhagsáætlunar er verðbólga áætluð 2,7% á árinu 2020.   Árið 2021 er gert ráð fyrir 2,5% verðbólgu og 2022 er miðað við 2,5% verðbólgu. Árið 2023 er gert ráð fyrir 2,5% verðbólgu.  Greiddir vextir miðast við þá lánasamninga sem þegar hafa verið gerðir.  Ekki er gert ráð fyrir breytingum á gengi íslensku krónunnar á tímabilinu.

Önnur atriði sem einkenna áætlun 2020:
Ef farið er í gegnum frekari greiningu á þeirri áætlun sem hér er lögð fram eru nokkur almenn atriði sem vert er að geta:

  1. Fjárfestingar ársins 2020 í Eignasjóði eru áætlaðar 272,5 millj. kr.  Meðal stærri framkvæmda sem áform eru um að hefjist á árinu 2020 og næstu 2 árin á eftir eru viðbygging við Leikskólann Hádegishöfða og fimleikahús.  Er kostnaður þessara 2ja verkefna áætlaður um 695 millj. kr og ljúki að mestu á árinu 2022.  
  2. Á árinu 2018  var gengið frá samningi við Ríkið um menningarhús en þar er um að ræða  uppbyggingu á aðstöðu í Sláturhúsinu og Safnahúsinu en það verkefni er áætlað að kosti um 436 millj. kr. og er áætlað að ljúki á árinu 2022.
  3. Nýframkvæmdir í gatnagerð eru einnig á forgangslista næstu ára og er áætlað að verja 157 millj. kr. til þeirra verkefna á næstu 4 árum en á móti koma tekjur af gatnagerðargjöldum upp á um 60 millj. kr.  
  4. Hitaveita Egilsstaða og Fella gerir ráð fyrir að verja 184 millj. kr. í fjárfestinga á næsta ári sem er að stórum hluta 1. áfangi í heildarlausn á útrásum fráveitu. Að auki er HEF að vinna endanlega kostnaðaráætlun á ljósleiðaravæðingu í dreifbýli Fljótsdalshéraðs en hún mun líta ljóss á næstu vikum. 
  5. Til félagslegra íbúða er áætlað að verja 23 millj. kr. í endurbyggingu eigna. 
  6. Samkvæmt fyrirliggjandi áætlun er gert ráð fyrir 145 millj. kr. lántöku hjá A hluta vegna fjárfestinga á árinu 2020.   
  7. HEF mun ekki þurfa  lántöku til að mæta þeim fjárfestingum á árinu 2020 sem eru í þessari áætlun. Verið að endurmeta heildarkostnað á ljósleiðaraverkefninu og því liggur ekki fyrir hvort eða hvernig fjármögnun á því verkefni verður mætt.

Nánari upplýsingar veitir Björn Ingimarsson, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs.

Attachment


Pièces jointes

Fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs 2020 - 2023_6. nóv 2019