Heimavellir hf.
16. janúar 2020
Endurskipulagning eignasafns í samræmi við áætlanir
Samhliða birtingu uppgjörs fyrri árshluta 2019 þann 29. ágúst 2019 tilkynntu Heimavellir um uppfærða áætlun fyrir endurskipulagningu eignasafns félagsins. Áætlunin gerði ráð fyrir sölu ríflega 400 íbúða að andvirði 14.500 – 15.500 á árunum 2019-2021.
Á 4. ársfjórðungi 2019 var eignasala í samræmi við áætlanir og seldi félagið 112 íbúðir víðs vegar um landið. Á sama tíma tók félagið við 19 íbúðum við Hlíðarenda í Reykjavík.
Við árslok 2019 átti félagið 1.627 leiguíbúðir.
Breyting á fjölda íbúða á árinu 2019 eftir ársfjórðungum
Keyptar íbúðir | Seldar íbúðir | |||||
Ársfjórð. | Fjöldi | Fjöldi | Stærð (m2) | Söluverð m.kr. | Bókfært virði seldra íbúða m.kr | Munur á söluverði og bókfærðu virði |
1F 19 | 36 | 111 | 10.380 | 3.196 | 3.062 | 4,4% |
2F 19 | 3 | 98 | 10.178 | 2.820 | 2.761 | 2,1% |
3F 19 | 48 | 49 | 4.628 | 1.985 | 1.850 | 7,3% |
4F 19 | 19 | 112 | 10.366 | 3.504 | 3.249 | 7,9% |
Samtals: | 106 | 370 | 35.552 | 11.505 | 10.922 | 5,3% |
Nánari upplýsingar veitir:
Arnar Gauti Reynisson framkvæmdastjóri Heimavalla
gauti@heimavellir.is
s.: 8605300