Heimavellir hf. - Niðurstaða aðalfundar 2020


Fimmtudaginn 12. mars 2020 var aðalfundur Heimavalla hf. haldinn á Hilton Reykjavík Nordica. Fundurinn hófst kl:15:00. Tillögur stjórnar fyrir fundinum má finna á vefsíðu félagsins:
https://www.heimavellir.is/static/files/Adalfudur2020/endanlegar-tillogur-stjornar-fyrir-adalfund-heimavalla-hf.-thann-12.-mars-2020.pdf

1. Skýrsla stjórnar um rekstur félagsins sl. starfsár
Varaformaður stjórnar flutti skýrslu stjórnar fyrir aðalfundinum.

2. Ársreikningur fyrir liðið starfsár ásamt athugasemdum endurskoðanda lagður fram til staðfestingar.
Aðalfundur samþykkti ársreikning félagsins vegna ársins 2019

3. Ákvörðun um meðferð hagnaðar eða taps á liðnu reikningsári.
Tillaga stjórnar um að enginn arður verði greiddur fyrir starfsárið 2019 var samþykkt.

4. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu lögð fram til staðfestingar.
Aðalfundur samþykkti tillöguna með meirihluta atkvæða.

5. Stjórnarkjör
Sjálfkjörið var í stjórn þ.e:
Árni Jón Pálsson
Erlendur Magnússon
Halldór Kristjánsson
Hildur Árnadóttir
Rannveig Eir Einarsdóttir

6. Kosning endurskoðanda eða endurskoðunarfélags.
Aðalfundur samþykkti að KPMG ehf. yrði endurskoðunarfélag Heimavalla hf.

7. Tillaga um þóknun til stjórnarmanna og undirnefndar stjórnar fyrir komandi starfsár.
Aðalfundur samþykkti tillögu stjórnar um þóknun stjórnarmanna og undirnefnda, en tillögu stjórnar má finna í tillöguyfirlitinu fyrir aðalfund á ofangreindri vefsíðu félagsins.

8. Tillaga stjórnar um lækkun hlutafjár.
           a. Lækkun hlutafjár með lækkun á eigin hlutum
Aðalfundur felldi tillögu stjórnar um lækkun á eigin hlutum félagsins.

           b. Lækkun hlutafjár með greiðslu til hluthafa
Aðalfundur felldi tillögu stjórnar um lækkun á eigin hlutum félagsins.

9. Heimild stjórnar til að kaupa eigin hluti í félaginu í því skyni að setja upp formlega endurkaupaáætlun, gera tilboð til hluthafa eða kaupa hluta eigin hlutabréfa í einum viðskiptum.
Aðalfundur felldi tillögu stjórnar um endurkaupaheimild.

10. Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni sem löglega eru upp borin. 
Engin önnur mál voru tekin til afgreiðslu á fundinum og var honum slitið kl:15:34

Fundargerð fundarins verður aðgengileg á heimasíðu félagins. 

GlobeNewswire