Í viku 21 keypti Marel hf. 842.689 eigin hluti að kaupverði 566.112.596kr. eins og nánar er tilgreint hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr) |
18.5.2020 | 13:23 | 150.000 | 658 | 98.700.000 |
18.5.2020 | 13:37 | 100.000 | 660 | 66.000.000 |
18.5.2020 | 14:43 | 5.000 | 665 | 3.325.000 |
18.5.2020 | 15:04 | 50.000 | 665 | 33.250.000 |
19.5.2020 | 10:06 | 50.000 | 665 | 33.250.000 |
19.5.2020 | 12:57 | 100.000 | 668 | 66.800.000 |
19.5.2020 | 13:29 | 30.000 | 668 | 20.040.000 |
19.5.2020 | 14:54 | 42.689 | 668,5 | 28.537.596 |
19.5.2020 | 15:19 | 60.000 | 669 | 40.140.000 |
20.5.2020 | 14:30 | 25.000 | 686 | 17.150.000 |
22.5.2020 | 09:33 | 3.766 | 687 | 2.587.242 |
22.5.2020 | 11:29 | 70.000 | 690 | 48.300.000 |
22.5.2020 | 11;40 | 100.000 | 690 | 69.000.000 |
22.5.2020 | 12:19 | 6.234 | 687 | 4.282.758 |
22.5.2020 | 14:33 | 50.000 | 695 | 34.750.000 |
Samtals | 842.689 | 566.112.596 |
Um er að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 10. mars 2020 og var gerð í samræmi við þágildandi heimild aðalfundar Marel hf. þann 6. mars 2019 til kaupa á eigin bréfum, sem endurnýjuð var á aðalfundi félagsins þann 18. mars 2020.
Marel hf. átti 18.989.810 eigin hluti fyrir viðskiptin og átti að þeim loknum 19.832.499 eigin hluti eða sem nemur 2,57% af útgefnum hlutum í félaginu.
Marel hf. hefur keypt samtals 11.083.685 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,44% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 6.335.748.405kr.
Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 25.000.000 hlutum eða sem nemur 3,2% af útgefnum hlutum í félaginu. Endurkaupaáætlunin er í gildi á tímabilinu 11. mars 2020 til og með 4. september 2020.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995, lög um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007, viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 596/2014 um markaðssvik („MAR“), og reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052.
Fjárfestatengsl
Nánari upplýsingar veita Fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið:IR@marel.com og í síma +354 563 8001.
Um Marel
Marel er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Hjá félaginu starfa um 6.300 manns í yfir 30 löndum, þar af um 720 á Íslandi. Marel velti um 1,3 milljarði evra árið 2019 en árlega fjárfestir Marel um 6% af veltu í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagið hefur verið skráð í Kauphöll Íslands síðan árið 1992 og var lokið við tvíhliða skráningu í Euronext Kauphöllina í Amsterdam í júní 2019.