Marel: Tækifæri til vaxtar – Fjárfestadagar 2021


Meðfylgjandi er kynningin frá fjárfestafundi Marel um tækifæri til vaxtar.

Í ár heldur Marel rafræna fjárfestadaga þar sem stjórnendur Marel ásamt sérfræðingum og viðskiptavinum veita einstaka 360° innsýn í starfsemi Marel.

Í dag, 11. nóvember 2021, fer fram rafrænn fjárfestadagur Marel með fjárfestum og markaðsaðilum. Yfirskrift viðburðar dagsins er “Tækifæri til vaxtar” en þar munu lykilstjórnendur Marel, þar á meðal Árni Oddur Þórðarson forstjóri, Linda Jónsdóttir fjármálastjóri og Árni Sigurðsson framkvæmdastjóri stefnumótunar og stefnumarkandi rekstrareininga, fara yfir metnaðarfulla stefnu félagsins um vöxt til næstu ára.

Skráning fer fram hér og er opin öllum. Upptaka af fundinum verður aðgengileg á marel.com/cmd360.

Þessi fjárfestadagur er partur af 360° viðburðaseríu Marel og er annar af fimm rafrænum viðburðum sem fara fram í nóvember og desember, hver með sitt þema.

Fjárfestadagar Marel 360° - viðburðasería

  • 7. októberRafræn heimsókn í höfuðstöðvar Marel og hvítfiskvinnslu Brim
  • 11. nóvemberTækifæri til vaxtar
  • 18. nóvember – Sala og þjónusta á heimsvísu
  • 2. desember – Stafrænar lausnir
  • 9. desember – Sjálfbærni

Fjárfestatengsl

Nánari upplýsingar veita Fjárfestatengsl í gegnum netfangið ir@marel.com og í síma 563 8001.

Samskiptasvið

Fjölmiðlafyrirspurnir skulu sendar á Samskiptasvið Marel í gegnum netfangið globalcommunications@marel.com og í síma 563 8200.

Um Marel

Marel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, heildarlausna, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Hjá Marel starfa nú um 7.000 manns í yfir 30 löndum, þar af um 720 á Íslandi. Marel velti 1.238 milljónum evra árið 2020, en árlega fjárfestir félagið um 6% af veltu í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagið var stofnað 1983, skráð í Kauphöll Íslands árið 1992, og tvíhliða skráð í Euronext kauphöllina í Amsterdam árið 2019.

Viðhengi



Pièces jointes

Marel Capital Markets Day 2021 - Growth