Verður haldinn fimmtudaginn 31. mars 2022 í Safnahúsinu, Neskaupstað, kl. 14:00.
Fundurinn verður einnig haldinn með rafrænum hætti og verður hluthöfum þannig jafnframt boðið upp á fullgilda rafræna þátttöku á fundinum í gegnum Lumi AGM án þess að hluthafar séu viðstaddir á fundarstað.
Dagskrá fundarins er með eftirfarandi hætti:
- Skýrsla stjórnar
- Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til staðfestingar
- Tekin ákvörðun um greiðslu arðs
- Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu
- Ákveðin þóknun til stjórnar félagsins
- Stjórnarkjör
- Kjör endurskoðenda
- Tillaga um heimild stjórnar til kaupa á eigin hlutum
- Önnur mál, löglega fram borin
Meðfylgjandi er fundarboð með nánari upplýsingum, tillögur stjórnar og starfskjarastefna.
Allar nánari upplýsingar um hluthafafundinn má finna á vefsíðu félagsins https://svn.is/fjarfestar/
Stjórn Síldarvinnslunnar hf.
Viðhengi
- Aðalfundur SVN 31. mars 2022 (fundarboð) 100322
- SVN - tillögur fyrir aðalfund 2022 -100322
- starfskjarastefna 2022 - 090322