Í 21. viku 2024 keypti Nova Klúbburinn hf. 2.567.000 eigin hluti að kaupverði 13.022.000 kr. í samræmi við eftirfarandi:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
21/05/2024 | 14:26:30 | 658.000 | 3.92 | 2.579.360 |
22/05/2024 | 12:15:26 | 618.000 | 3.92 | 2.422.560 |
23/05/2024 | 10:19:48 | 783.000 | 3.93 | 3.077.190 |
24/05/2024 | 10:28:57 | 508.000 | 3.93 | 1.996.440 |
Samtals | 2.567.000 | 10.075.550 |
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 24. apríl 2024. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2025.
Nova Klúbburinn átti 10.455.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 13.022.000 hluti, eða um 0,353% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 51.427.850 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á fjarfestatengsl@nova.is