Kvika – MÉLLON hs.: Árshlutauppgjör júní 2024


Kvika – MÉLLON hs. gaf út skuldabréf sem tekin voru til viðskipta hjá First North skuldabréfamarkaði á árinu 2018. Meðfylgjandi er árshlutareikningur 2024 fyrir Kviku – MÉLLON hs.

  • Tap sjóðsins á fyrri árshelmingi 2024 nam 7,4 milljónum króna samkvæmt rekstrarreikningi.
  • Hrein eign sjóðsins var neikvæð sem nemur 55,4 milljónum króna samkvæmt efnahagsreikningi.
  • Árshlutareikningurinn var kannaður af Deloitte ehf. Við könnun þeirra kom ekkert fram sem bendir til annars en að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á tímabilinu, efnahag hans 30. júní 2024 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á tímabilinu, í samræmi við lög um ársreikninga og lög um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.

Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Kviku eignastýringar hf. í síma 522-0010.

Viðhengi



Pièces jointes

Méllon árshlutareikningur 30.06.24
GlobeNewswire