Árshlutareikningur Félagsbústaða 30.09.2024
Stjórn Félagsbústaða hf. samþykkti árshlutareikning félagsins fyrir fyrstu 9 mánuði ársins 2024 á fundi sínum í dag 21. nóvember.
Hagnaður vegna hækkunar á eignasafni
Hagnaður félagsins á tímabilinu nam 1.219 m.kr. og er hann allur tilkominn vegna hækkunar á virði fasteignamats eigna félagsins. Hagnaðurinn verður ekki innleystur nema með eignasölu.
Sjóðstreymi Félagsbústaða sýnir að handbært fé frá rekstri var 1.259 m.kr. samanborið við 583 m.kr. árið áður. Afborganir langtíma lána námu 1.129 m.kr. Helstu kennitölur reikningsins eru:
- Rekstrartekjur tímabilsins námu 5.262 m.kr.
- Afkoma fyrir matsbreytingu (EBITDA) nam 2.412 m.kr. eða 45,8% af rekstrartekjum
- Matshækkun fjárfestingareigna á tímabilinu nam 2.635 m.kr.
- Virði fjárfestingareigna í lok tímabilsins er 161.284 m.kr.
- Eigið fé í lok tímabilsins er 86.369 m.kr.
- Eiginfjárhlutfall í lok tímabilsins er 53,4%
- Vaxtaberandi skuldir í lok tímabils nema 63.679 m.kr.
Rekstur og afkoma
Rekstrartekjur Félagsbústaða fyrstu 9 mánuði ársins 2024 námu 5.262 m.kr., er það aukning um 10,3% milli ára sem skýrist af hækkun leiguverðs vegna verðlagsbreytinga, bættri nýtingu eigna og stækkun eignasafnsins. Rekstur og viðhald eigna lækkar um 229 m.kr. eða um 8,9% á milli ára. Rekstrarhagnaðarhlutfall (EBITDA%) er 45,8% samanborið við 36,3% á sama tíma árið áður.
Eignasafn og efnahagur
Heildareignir félagsins námu 161.848 m.kr. í lok tímabilsins en þær jukust um 2,1% frá ársbyrjun. Fjárfestingareignir jukust um 2,6% eða 4.106 m.kr., fjárfest var fyrir 1.143 m.kr. og matsbreyting nam 2.963 m.kr. Heildarskuldir nema 64.510 m.kr. og hækkuðu um 1.584 m.kr. fyrstu 9 mánuði ársins. Eigið fé jókst um 1.219 m.kr. á tímabilinu. Eiginfjárhlutfall í lok tímabils var 53,4% en 53,7% í lok árs 2023.
Skuldabréfaútboð
Félagsbústaðir eru með skráð skuldabréf í Kauphöll Íslands og fylgja þeim reglum sem gilda um skráð félög. Samþykktir félagsins kveða einnig á um fyrirkomulag ýmissa þátta í starfseminni og eru þær aðgengilegar á vefsíðu þess ásamt þeim lögum sem gilda um félagið.
Ekki hafa verið tekin lán á árinu 2024. Félagið hefur fjármagnað fjárfestingar með útgáfu á félagslegum skuldabréfum í skuldabréfaflokknum FB100366 SB. Skuldabréfaflokkurinn er verðtryggður með ársfjórðungslegum jöfnum greiðslum til lokadags þann 10. mars 2066 og hann ber einfalda ábyrgð Reykjavíkurborgar. Alls hafa verið gefnar út 18.800 milljónir að nafnvirði í skuldabréfaflokknum. Flokkurinn er skráður á Sustainable Bond markaði Nasdaq Iceland.
Þróun eignasafns
Félagsbústaðir keyptu 19 fasteignir á fyrstu 9 mánuðum ársins 2024 en áform voru um að fjölga íbúðum um 54. 2 fasteignir voru seldar á tímabilinu.
Nánari upplýsingar veitir:
Sigrún Árnadóttir, framkvæmdastjóri, sigrun@felagsbustadir.is, sími 520 1500
Viðhengi