Ársreikningur Byggðastofnunar 2024


Ársreikningur Byggðastofnunar 2024

Ársreikningur Byggðastofnunar fyrir árið 2024, var staðfestur af stjórn stofnunarinnar 27. febrúar 2025.

Ársreikningur Byggðastofnunar fyrir árið 2024 er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla fyrir opinbera aðila sem miða við rekstrargrunn (e. accrual basis IPSAS, International Public Sector Accounting Standards, vísað til sem "IPSAS").

Eiginfjárstaða stofnunarinnar er áfram sterk og gefur henni færi á að vera öflugur bakhjarl atvinnulífs á landsbyggðunum.

Afkoma ársins var jákvæð um 1.304,7 milljónir króna á móti jákvæðri afkomu upp á 703,5 milljónir króna árið 2023. Eiginfjárhlutfall í lok árs skv. eiginfjárákvæðum laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki var 23,17%.

Um stofnunina gilda lög um Byggðastofnun nr. 106/1999 og reglugerð nr. 347/2000. Hlutverk Byggðastofnunar er að efla byggð og atvinnulíf með sérstakri áherslu á jöfnun tækifæra allra landsmanna til atvinnu og búsetu. Í samræmi við hlutverk sitt undirbýr, skipuleggur og fjármagnar stofnunin verkefni og veitir lán með það að markmiði að treysta byggð, efla atvinnu og stuðla að nýsköpun í atvinnulífi. Stofnunin skipuleggur og vinnur að atvinnuráðgjöf í samstarfi við landshlutasamtök, sveitarfélög og aðra haghafa. Byggðastofnun fylgist með þróun byggðar í landinu, m.a. með gagnasöfnun og rannsóknum. Stofnunin getur gert eða látið gera áætlanir um þróun byggðar og atvinnulífs í þeim tilgangi að treysta búsetu og atvinnu í byggðum landsins.   Þá annast stofnunin framkvæmd laga um póstþjónustu og hafa eftirlit með póstþjónustu eins og nánar er kveðið á um í lögum um það efni. Skrifstofa stofnunarinnar er á Sauðárkróki.

Helstu niðurstöður úr ársreikningi Byggðastofnunar 2024

  • Afkoma ársins var jákvæð um 1.304,7 milljónir króna.
  • Eiginfjárhlutfall skv. lögum um fjármálafyrirtæki var 23,17% en skal að lágmarki vera 8%.
  • Hreinar vaxtatekjur voru 1.325 milljónir króna eða 49,6% af vaxtatekjum, samanborið við 1.243 milljónir króna (46% af vaxtatekjum) hreinar vaxtatekjur árið 2023.
  • Laun og annar rekstrarkostnaður nam 653 milljónum króna samanborið við 623 milljónir árið 2023.
  • Eignir námu 30.117 milljónum króna og hafa hækkað um 4.782 milljónir frá árslokum 2023. Þar af voru útlán 25.061 milljónir samanborið við 22.071 milljón í árslok 2023.
  • Skuldir námu 24.114 milljónum króna og hækkuðu um 3.477 milljónir á árinu 2023.

Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Arnar Már Elíasson forstjóri Byggðastofnunar í síma 455 5400 eða á netfanginu arnar@byggdastofnun.is

Lykiltölur úr ársreikningi og samanburður við fyrri ár

 202420232022
 Þús. kr.Þús. kr.Þús. kr.
Yfirlit um afkomu   
Vaxtatekjur.................................................2.670.4462.706.6422.303.782
Vaxtagjöld..................................................1.345.1881.463.2931.509.810
Hreinar vaxtatekjur.....................................1.325.2581.243.349793.971
Aðrar rekstrartekjur.....................................743.704656.934721.552
Hreinar rekstrartekjur..................................2.068.9621.900.2831.515.523
    
Önnur rekstrargjöld.....................................764.2771.196.7831.039.401
Afkoma ársins..........................................1.304.685703.500476.122
    
Með rekstrargjöldum eru færð framlög í afskriftareikning útlána lánsloforða og annarra krafna-276.899164.17281.443
    
    
Efnahagsreikningur31.12.202431.12.202331.12.2022
Eignir   
Handbært fé................................................2.636.872926.9301.686.337
Markaðsskuldabréf.......................................355.927340.013314.432
Aðrar kröfur................................................4.63925.29675.254
Hlutabréf.....................................................332.572285.687268.913
Fullnustueignir.............................................101060.010
Hlutdeildarfélög...........................................968.970904.568907.860
Útlán til viðskiptavina...................................25.060.93122.071.44720.072.461
Varanlegir rekstrarfjármunir.........................757.442781.796806.150
Eignir samtals..........................................30.117.36325.335.74724.191.417
    
Skuldir og eigið fé   
Lántökur og skuldabréfaútgáfur.....................23.406.32319.901.16219.290.410
Óráðstöfuð framlög......................................563.986529.287681.468
Aðrar skuldir...............................................144.030206.960224.700
Skuldir samtals........................................24.114.33920.637.40820.196.578
    
Eigið fé   
Eiginfjárframlag...........................................7.800.0007.800.0007.800.000
Uppsöfnuð afkoma.......................................-1.796.976-3.101.661-3.805.161
Eigið fé samtals...........................................6.003.0244.698.3393.994.839
    
Skuldir og eigið fé samtals......................30.117.36325.335.74724.191.417
    
Sjóðstreymi202420232022
Handbært fé (-til) frá rekstri.........................-1.734.762-913.756505.204
Fjárfestingarhreyfingar.................................-11.3380-299.000
Fjármögnunarhreyfingar...............................3.474.050163.058329.788
Hækkun/(-lækkun) á handbæru fé................1.727.950-750.698535.992
Gengismunur á handbæru fé.........................-18.008-8.70932.717
Handbært fé í ársbyrjun...............................926.9301.686.3371.117.627
Handbært fé í lok árs...............................2.636.872926.9301.686.337
    
Eiginfjárhlutfall samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki23,17%22,64%19,72%

Viðhengi



Pièces jointes

Fréttatilkynning v ársreiknings 2024 Byggðastofnun Ársreikningur 2024