REITIR: Aðalfundur 2. apríl 2025


Aðalfundur Reita fasteignafélags hf. verður haldinn kl. 15.00, miðvikudaginn 2. apríl 2025 í fundarsal 2 á Hotel Reykjavik Natura, Nauthólsvegi 52, 102 Reykjavík.

Drög að dagskrá fundarins:

1. Stjórn skýrir frá rekstri félagsins og hag þess á liðnu ári.
2. Ársreikningur og samstæðureikningur félagsins fyrir liðið starfsár lagðir fram til staðfestingar.
3. Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar félagsins á síðastliðnu starfsári.
4. Tillögur stjórnar lagðar fyrir aðalfund:
     a. Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutabréfum
     b. Tillaga um lækkun hlutafjár til jöfnunar eigin hluta                                                                                         
     c. Tillaga um breytingu á stefnu félagsins um fjárhagsleg markmið og ráðstöfun verðmæta til hluthafa
     d. Tillaga um breytingar á starfskjarastefnu félagsins
     e. Tillaga um skipun nefndarmanna í tilnefningarnefnd
     g. Tillaga um kosningu utanaðkomandi nefndarmanns í endurskoðunarnefnd
5. Kosning stjórnarmanna félagsins.
6. Kosning endurskoðanda eða endurskoðunarfélags.
7. Ákvörðun um laun stjórnar, undirnefnda stjórnar og tilnefningarnefndar fyrir komandi starfsár.
8. Önnur mál, löglega upp borin.

Hjálagt er fundarboð, tillögur stjórnar, stefna um fjárhagsleg markmið og ráðstöfun verðmæta til hluthafa með auðkenndum breytingum, starfskjarastefna með auðkenndum breytingum, skýrsla starfskjaranefndar og skýrsla tilnefningarnefndar.

Öll fundargögn, þar á meðal Ársreikningur Reita 2024, verða aðgengileg á aðalfundarvef félagsins, www.reitir.is/adalfundir

Viðhengi



Pièces jointes

Auglýsing - Boðun aðalfundar Reita 2025 Tillögur stjórnar til aðalfundar Reita 2025 Stefna um fjárhagsleg markmið og ráðstöfun verðmæta til hluthafa með auðkenndum breytingum 2025 Starfskjarastefna Reita með auðkenndum breytingum 2025 Skýrsla starfskjaranefndar 2025 - rafrænt undirrituð Skýrsla tilnefningarnefndar 2025 ásamt viðaukum I og II - rafrænt undirrituð