Mosfellsbær skilar 877 milljóna króna afgangi – metár í framkvæmdum og sterk fjárhagsstaða 



Ársreikningur Mosfellsbæjar fyrir árið 2024 var lagður fyrir fund bæjarráðs í dag, fimmtudaginn 3. apríl 2025. Rekstrarniðurstaða A og B hluta Mosfellsbæjar er jákvæð um 877 milljónir.  



„Þessi niðurstaða endurspeglar traustan og ábyrgan rekstur, þrátt fyrir verðbólgu og hátt vaxtastig. Við höfum náð þessum árangri á sama tíma og við höfum ráðist í metnaðarfullar framkvæmdir og nauðsynlegt viðhald“ segir Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri. 



Metár í framkvæmdum 

Rekstrarniðurstaðan er í góðu samræmi við fjárhagsáætlun. Stærsta framkvæmd ársins er nýr leikskóli fyrir 150 börn í Helgafellshverfi sem verður tekinn til notkunar í sumar 2025. Þá var einnig unnið að innréttingum í íþróttahúsinu við Helgafellsskóla og við gatnagerð í hverfinu. Framkvæmdir voru hafnar á aðalvellinum við Varmá og endurnýjun skólalóða við Kvíslarskóla og Varmárskóla. Auk þess var farið í umfangsmiklar viðhaldsframkvæmdir í skólabyggingum.  



„Árið 2024 einkenndist af umfangsmiklum framkvæmdum en það var fjárfest fyrir 3,7 ma kr. og er eitt stærsta fjárfestingaár Mosfellsbæjar til þessa“ segir Regína. ,,Þá opnuðum við nýjan búsetukjarna í Helgafellshverfi fyrir fatlaða einstaklinga og tókum í gagnið nýja félagsmiðstöð fyrir aldraða í sögufrægri byggingu að Brúarlandi.”  



Traustur rekstur 

Heildartekjur bæjarins námu 22,2 milljörðum króna. Rekstrargjöld fyrir afskriftir voru 19,2 milljarðar króna, þar af nam launakostnaður 10,9 milljörðum eða 57% útgjalda. 



Eigið fé sveitarfélagsins var 8,8 milljarðar í árslok og eiginfjárhlutfall 25,1%. Veltufé frá rekstri nam 1.815 milljónum eða 8,2% af tekjum. Skuldaviðmið var 94,5% sem er vel innan ramma um fjármál sveitarfélaga sem er 150%.  



Fræðslu- og uppeldismál eru umfangsmesti málaflokkurinn og til hans var varið 9.221 milljónum eða 53,4% skatttekna. Til félagsþjónustu var veitt 3.786 milljónum eða 21,9% skatttekna og eru þar með talin framlög vegna málefna fatlaðs fólks. Loks eru íþrótta- og tómstundarmál þriðja umfangsmesta verkefni bæjarins og til þeirra var ráðstafað um 1.770 milljónum eða 10,3% skatttekna. 



Íbúum heldur áfram að fjölga 

Mosfellsbær er sjöunda fjölmennasta sveitarfélag landsins og voru íbúar 13.715 þann 1. janúar 2025. Á síðustu tíu árum hefur íbúafjöldi Mosfellsbæjar vaxið um tæp 50%. Áfram er gert ráð fyrir íbúafjölgun næstu árin með lokaáföngum Helgafellshverfis og nýju hverfi í landi Blikastaða. 



„Við leggjum ríka áherslu á að veita góða þjónustu og halda áfram að byggja upp öflugt samfélag á  traustum grunni,“ segir Regína Ásvaldsdóttir. 



Nánari upplýsingar veitir Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri í síma 525-6700  


Viðhengi



Pièces jointes

Ársreikningur  Mosfellsbær 2024 - með áritun bæjarráðs 03.04.2025