Eik fasteignafélag hf.: Framboð í tilnefningarnefnd 2025. Skráning á aðalfund.


Eftirtalin hafa boðið sig fram í tilnefningarnefnd Eikar fasteignafélags hf., en framboðsfrestur rann út 5. apríl 2025:

- Anton Reynir Hafdísarson

- Áslaug Eva Björnsdóttir

- Íris Björk Hreinsdóttir

- Sigurður Ólafsson

Samþykktir félagsins gera ráð fyrir að tveir nefndarmenn séu kjörnir af hluthöfum. Stjórn tilnefndi Sigrúnu Rögnu Ólafsdóttur að loknum aðalfundi 2024 í tilnefningarnefnd til tveggja ára. Nánari upplýsingar um frambjóðendur eru í viðhengi.

Fundurinn verður haldinn kl. 14:00 fimmtudaginn 10. apríl 2025 að Sjálandi, Ránargrund 4, 210 Garðabæ, en atkvæðagreiðslur verða einungis rafrænar.

Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á því að taka þátt í fundinum eru minntir á að skrá sig tímanlega á heimasíðunni www.lumiconnect.com/meeting/eik2025 og ekki seinna en kl. 16:00 miðvikudaginn 9. apríl 2025. Aðstoð við skráningu á aðalfundinn er hægt að fá með því að senda tölvupóst á stjornun@eik.is

Viðhengi



Pièces jointes

Framboð í tilnefningarnefnd Eikar fasteignafélags hf. 2025