REITIR: Kynningarfundur vegna birtingar uppgjörs fyrsta ársfjórðungs 2025


Reitir birta árshlutauppgjör vegna fyrsta ársfjórðungs 2025 eftir lokun markaða á morgun, fimmtudaginn 15. maí. 

Af því tilefni er fjárfestum og markaðsaðilum boðið til fundar þar sem Guðni Aðalsteinsson, forstjóri og Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, kynna uppgjörið. 

Fundurinn verður haldinn kl. 8:30 föstudaginn 16. maí á skrifstofu Reita, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík. Fundinum er jafnframt streymt í gegnum netið á slóðinni https://vimeo.com/event/5131532/embed/8582d29558/interaction 

Fjárfestar sem fylgjast með streymi geta sent spurningar sem óskað er eftir að verði teknar fyrir á fundinum á netfangið fjarfestatengsl@reitir.is

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í 669 4416 eða einar@reitir.is