Hafnarfjarðarkaupstaður – Niðurstaða úr skuldabréfaútboði 14. maí


Hafnarfjarðarkaupstaður hefur lokið útboði í skuldabréfaflokknum HFJ 50 1

Heildartilboð í HFJ 50 1 voru samtals 2.100 m.kr. að nafnvirði á kröfunni 3,85%-4,00%. Ákveðið var að taka tilboðum samtals að nafnvirði 1.200 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,87%.

Þetta var fyrsta útboðið í skuldabréfaflokknum og er því heildarstærð flokksins 1.200 m.kr. að nafnvirði.

Nánari upplýsingar veitir:

Helga Benediktsdóttir
sviðsstjóri fjármálasviðs Hafnarfjarðarkaupstaðar
netfang: helga@hafnarfjordur.is