Eik fasteignafélag hf.: Niðurstaða útboðs skuldabréfa


Eik fasteignafélag hf. („Eik“) lauk í dag útboði á skuldabréfaflokkunum EIK 150531, EIK 120266 og EIK 29 1.

Í útboðinu bárust tilboð að heildarnafnvirði 3.050 m.kr. í EIK 150531, 1.780 m.kr. í EIK 120266 og 1.320 m.kr. í EIK 29 1. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði 1.020 m.kr. í EIK 150531 á ávöxtunarkröfunni 4,55%, tilboðum að nafnvirði 1.500 m.kr. í EIK 120266 á ávöxtunarkröfunni 4,07% og tilboðum að nafnvirði 480 m.kr. í EIK 29 1 á genginu 98,7456.

Niðurstaða útboðs:

FlokkurEIK 29 1EIK 150531EIK 120266
Áætlaður greiðslu- og uppgjörsdagur17.9.202617.9.202617.9.2026
Samþykkt tilboð að nafnverði (m.kr.)4801.0201.500
Samþykkt (ávöxtunarkrafa) 4,55%4,07%
Fjöldi innsendra tilboða6128
Upphæð móttekinna tilboða að nafnverði (m.kr.)1.3203.0501.780
Fjöldi samþykktra tilboða667
Vegið meðaltal innsendra tilboða (ávöxtunarkrafa) 4,59%4,02%
Boðhlutfall2,752,991,19


Þetta var þriðja útboðið í flokknum EIK 150531 og er heildarstæð flokksins 7.000 m.kr. að nafnvirði eftir útboðið.

Þetta var fjórða útboðið í EIK 120266 og er heildarstærð flokksins 5.800 m.kr. að nafnvirði eftir útboðið.

Þetta var þriðja útboðið í skuldabréfaflokknum EIK 29 1 og er heildarstærð flokksins 4.560 m.kr. að nafnvirði eftir útboðið.

EIK 150531 og EIK 120266 eru verðtryggð skuldabréf tryggð með almenna tryggingarfyrirkomulagi félagsins. EIK 29 1 er óverðtryggt og óveðtryggt skuldabréf.

Markaðsviðskipti Arion banka höfðu umsjón með útboðinu.

Nánari upplýsingar veitir:

Lýður Heiðar Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármála og UT, lydur@eik.is, s. 820-8980


GlobeNewswire