Ásar hf. – Samningur við Kviku banka hf. um viðskiptavakt


Ásar hf. hefur gert nýjan samning við Kviku banka hf. um viðskiptavakt á hlutabréfum útgefnum af félaginu sem skráð er á aðalmarkað Nasdaq Iceland.

Tilgangurinn með viðskiptavaktinni er að stuðla að því að seljanleiki hlutabréfa félagsins aukist, markaðsverð skapist og verðmyndun hlutabréfanna verði með sem skilvirkustum og gagnsæjustum hætti.

Samningurinn kveður á um að Kvika skuli hvern viðskiptadag leggja fram kaup- og sölutilboð í hlutabréf félagsins í viðskiptakerfi Kauphallarinnar. Tilboðin skulu gilda innan dagsins. Verði tilboði Kviku tekið eða verði það fellt niður af hálfu Kviku skal Kvika setja fram nýtt tilboð þar til hámarksfjárhæð viðskipta fyrir hvern dag hefur verið náð. Tilboð skulu endurnýjuð eins fljótt og unnt er, þó ávallt innan 10 mínútna eftir að þeim er tekið að fullu eða þau felld niður af hálfu Kviku.

Kvika skal leggja fram kaup- og sölutilboð sem varða að lágmarki 1.500.000 hluti, á gengi sem Kvika ákveður hverju sinni. Tilboðin skulu lögð fram í tveimur hlutum. Annars vegar að minnsta kosti 150.000 hlutir með verðbil að hámarki 1,5% og hins vegar að lágmarki 1.350.000 hlutir með verðbili sem skal vera sem næst 1,5%, en þó ekki lægra en 1,45%. Tilboð skulu miðast við verðskrefatöflu Kauphallarinnar. Kviku er þó heimilt að setja fram tilboð með lægra verðbili ef sérstakar aðstæður skapast vegna verðskrefatöflunnar. Eigi Kvika viðskipti með bréf félagsins samkvæmt samningnum fyrir 10 milljónir að nafnvirði eða meira innan dags, falla niður skyldur um hámarksmun kaup- og sölutilboða innan þess dags. Ef verðbreyting innan viðskiptadags er umfram 5% er Kviku heimilt að auka hámarksverðbil í 3%.

Samningurinn er ótímabundinn og kemur til framkvæmda frá og með 1. október 2026. Samningurinn er uppsegjanlegur af beggja hálfu með 14 daga fyrirvara.

Samningi Ása hf. og Íslandsbanka hf. um viðskiptavakt hefur verið sagt upp og lýkur viðskiptavakt Íslandsbanka við lok viðskiptadags 30. september 2026.

Nánari upplýsingar veitir Hjörtur Þór Steindórsson fjármálastjóri, hjortur.steindorsson@asar.is.


GlobeNewswire