Nova Klúbburinn hf. - Uppgjör þriðja ársfjórðungs 2026


Afkoma Nova styrkist og Ofar kemur að fullu inn á fjórðungnum
                                                  

Nova Klúbburinn skilaði hæstu tekjum í sögu sinni á þriðja ársfjórðungi, fyrsta heila fjórðungnum með Ofar í samstæðunni. Tekjur námu 5.815 m.kr. og hagnaður jókst um 24% milli ára.

Rekstur Nova styrktist bæði í tekjum og arðsemi. Þjónustutekjur jukust um 5,3% og tekjur af FastNeti um 10,5% milli ára, meðal annars vegna fjölgunar heimilistenginga um 5,6% og vaxtar í sérlausnum fyrir stórnotendur á gagnamagni. Einföldun í rekstri skilar sér í bættri arðsemi og EBITDA-hlutfall Nova hækkaði í 26,9% úr 20,4% á öðrum ársfjórðungi. Styrkur Nova sést líka í sjóðstreyminu. Nova skilaði 567 m.kr. í handbæru fé frá rekstri á fjórðungnum.

Hjá Ofar höfðu aukin birgðakaup fyrir boðaðar verðhækkanir og fyrirsjáanlegt skert framboð á tölvubúnaði tímabundin áhrif á fjárbindingu félagsins. Sú ákvörðun hefur gefið forskot við öflun nýrra viðskiptavina. Þetta hafði áhrif á handbært fé frá rekstri samstæðunnar, sem var neikvætt um 47 m.kr. Félagið nýtti sér skammtímafjármögnun sem hefur nú að stórum hluta verið greidd niður. Áfram verður lögð áhersla á að draga úr fjárbindingu í birgðum, styrkja sjóðstreymið og vinna að samlegðarverkefnum.

Tveir sterkir rekstraraðilar og tveir vaxtarbroddar í uppbyggingu breyta samsetningu samstæðunnar frá fyrra ári. Kosmos hóf að veita þjónustu í maí, Ofar kom inn í samstæðuna 1. júní, og Ligo tók til starfa 1. júlí. Rekstur þessara félaga var því ekki hluti af uppgjöri samstæðunnar á þriðja ársfjórðungi 2025. Þá breyttist rekstrarfyrirkomulag Nova við framsal 4G- og 5G-dreifikerfisins til Sendafélagsins um síðustu áramót. Sú breyting leiðir til lægri EBITDA en jafnframt minni afskrifta og fjárfestinga. Samanburður á milli ára markast því af breyttri samsetningu samstæðunnar þar sem með innkomu Ofar verður vörusala hærra hlutfall af heildartekjum, auk þess sem hlutdeild í afkomu Sendafélagsins er nú færð samkvæmt hlutdeildaraðferð, sem leiðir til lægri EBITDA og lægri fjárfestinga í samstæðureikningnum.

 

Helstu niðurstöður á þriðja ársfjórðungi:

  • Heildartekjur samstæðunnar námu 5.815 m.kr. og jukust um 66% milli ára, einkum vegna innkomu Ofar.
  • EBITDA samstæðunnar nam 1.051 m.kr. og lækkaði um 5% milli ára sem skýrist af breyttri samsetningu samstæðunnar.
  • EBITDA-hlutfall samstæðunnar var 18,1% samanborið við 31,6% á sama tíma á fyrra ári, en hækkar frá öðrum ársfjórðungi þegar það nam 16,7%. Lækkunin milli ára skýrist af breyttri samsetningu samstæðunnar sem og aukinni hlutdeild vörusölutekna.
  • Hagnaður samstæðunnar eftir skatta nam 282 m.kr. og jókst um 24% milli ára.
  • Eiginfjárhlutfall samstæðunnar var 33,2% og eigið fé nam 9.537 m.kr.
  • Tekjur Nova jukust um 4,9% á sambærilegum grunni og EBITDA-hlutfall Nova var 26,9%, samanborið við 20,4% á öðrum ársfjórðungi.
  • Hjá Nova fjölgaði heimilistengingum um 5,6% milli ára og tekjur af FastNeti jukust um 10,5%.
  • Rekstur Ofar skilaði 2.265 m.kr. í tekjum, þar sem m.a. tekjur af vörusölu og þjónustu við gagnaver eru í miklum vexti.
  • Neðri mörk tekjuhorfa ársins eru hækkuð um 200 m.kr. og er nú gert ráð fyrir tekjum á bilinu 19,2 til 19,4 ma. kr., sem nemur 45-47% hækkun á milli ára. EBITDA-horfur eru endurskoðaðar og verða á bilinu 3,5–3,6 ma.kr., sem nemur 13-16% hækkun milli ára. Breyting á EBITDA-horfum skýrist af því að uppbygging Ligo hefur tekið lengri tíma en gert var ráð fyrir.


Sylvía Kristín Ólafsdóttir, forstjóri Nova Klúbbsins, segir að byggð hafi verið stærri og breiðari samstæða á sterkum kjarna. Næsti áfangi sé að sýna að stækkunin skili sér í aukinni framlegð og bættu sjóðstreymi.

„Á innan við ári höfum við tekið á móti Ofar, hleypt Kosmos og Ligo af stokkunum og unnið að uppbyggingu innviða okkar. Þetta er fyrsti ársfjórðungurinn þar sem þetta kemur saman í einu uppgjöri. Tekjur samstæðunnar hafa aldrei verið hærri. Á sama tíma og við byggjum upp nýja tekjustrauma sjáum við rekstur Nova styrkjast.

Það er góður gangur hjá Nova. Við sjáum tekjur vaxa á sama tíma og við höfum einfaldað hvernig við vinnum, sem skilar sér beint í afkomunni. Við sjáum aukinn slagkraft á fyrirtækjamarkaði í kjölfar umbóta á ímynd fyrirtækjaþjónustu Nova í lok annars ársfjórðungs. Nova Heimili kom út í byrjun október, þar sem við skorum á markaðinn með nýrri nálgun þegar kemur að netinu heima. Nova býður þar heimilum að setjast í bílstjórasætið með því að velja sér einungis þær þjónustur sem þau vilja, í stað þess að velja á milli fyrirfram samsettra pakka. Með heimilið hjá Nova býðst viðskiptavinum einnig að fá einn eftirsóttasta endabúnað á markaðinum, eero ráterinn, sem hefur verið í sviðsljósinu í nýrri kynningarherferð okkar.

Ofar sá verðhækkanir og takmarkað framboð á búnaði fyrir og tryggði sér birgðir í tæka tíð. Það hefur skilað sér í nýjum viðskiptavinum sem vilja geta treyst því að fá búnaðinn strax þegar þeir þurfa hann. Félagið annast nú jafnframt sólarhringsvöktun gervigreindarinnviða fyrir leiðandi alþjóðlegt fyrirtæki í tveimur gagnaverum hér á landi, sem er mikil viðurkenning á getu og sérþekkingu Ofar. Samhliða vinna Nova og Ofar saman að sókn á fyrirtækjamarkaði og samnýtingu verslana, upplýsingatækni, vöruhúss og dreifingar.

Kosmos býður ódýrasta verðið í fjarskiptum með því að bjóða eingöngu þráðlausar 5G lausnir. Við hagnýtum gervigreindina eins og hægt er, erum með litla yfirbyggingu og þar er hvorki hefðbundið þjónustuver né verslun. Viðskiptavinum fjölgar jafnt og þétt sem vilja einfalda og ódýra vöru og þannig fá viðskiptavinir samstæðunnar meira val. Ligo fer vel af stað og unnið er að markaðssókn í heildstæðum hlutanetslausnum fyrir stærri fyrirtæki og sveitarfélög. Uppbyggingin hefur tekið lengri tíma en upphaflega var gert ráð fyrir og hefur því væntu jákvæðu framlagi félagsins til afkomu ársins hefur því seinkað. Bæði Kosmos og Ligo eru vaxtarbroddar sem byggja á innviðum og þekkingu samstæðunnar og við gerum ráð fyrir að þau skili jákvæðri EBITDA á næsta ári.

Tækifærin snúast um að nýta tækni til að skapa verðmæti. Gervigreind og aukin sjálfvirkni munu breyta því hvernig fólk og fyrirtæki nýta sér þjónustu og þar viljum við vera fyrst inn í framtíðina með tækni sem vinnur fyrir þig. Með öflugum innviðum, sterkum viðskiptatengslum og bestu tækninni höfum við sterkar forsendur til að sækja ný tækifæri.

Fólkið okkar hefur hlaupið hratt á árinu. Við höfum fengið frábæra nýja samstarfsfélaga hjá Ofar, Kosmos og Ligo, byggt upp nýja samstæðu saman og aldrei misst sjónar á viðskiptavinunum. Ég er stolt af þessum hópi og innilega þakklát.“

Viðhengi



Pièces jointes

Nova Klubburinn hf. - Uppgjör - 3F 2026 Nova Klúbburinn - Fréttatilkynning - 3F 2026 Nova Klúbburinn hf. - Fréttatilkynning - Fylgiskjal - 3F 2026
GlobeNewswire