Stjórn Reita hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 2. nóvember 2026 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 3. nóvember 2026. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Í 45. viku 2026 keypti Reitir hf. 1.500.000 eigin hluti að kaupverði kr. 167.000.000 skv. sundurliðun hér á eftir:
| Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Gengi | Kaupverð |
| 3/11/26 | 09:57 | 150.000 | 112,00 | 16.800.000 |
| 3/11/26 | 14:18 | 100.000 | 111,00 | 11.100.000 |
| 3/11/26 | 14:20 | 150.000 | 111,00 | 16.650.000 |
| 4/11/26 | 12:08 | 200.000 | 111,00 | 22.200.000 |
| 4/11/26 | 14:23 | 100.000 | 111,00 | 11.100.000 |
| 4/11/26 | 15:22 | 100.000 | 111,00 | 11.100.000 |
| 5/11/26 | 11:37 | 200.000 | 112,00 | 22.400.000 |
| 5/11/26 | 15:19 | 100.000 | 111,50 | 11.150.000 |
| 6/11/26 | 10:04 | 100.000 | 111,50 | 11.150.000 |
| 6/11/26 | 13:07 | 100.000 | 111,50 | 11.150.000 |
| 6/11/26 | 15:17 | 50.000 | 111,00 | 5.550.000 |
| 6/11/26 | 15:17 | 50.000 | 111,00 | 5.550.000 |
| 6/11/26 | 15:20 | 100.000 | 111,00 | 11.100.000 |
| Samtals | 1.500.000 | 167.000.000 |
Reitir hafa nú keypt samtals 1.500.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 17,6% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 167.000.000 kr. sem samsvarar 16,7% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir.
Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 8.500.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 1.000 milljónir króna.
Frá lokum þriðja ársfjórðungs, síðasta birta uppgjöri félagsins, hefur félagið keypt 1.500.000 eigin hluti fyrir 167.000.000 kr.
Reitir eiga nú samtals 7.000.000 eigin hluti, eða um 1,02% af heildarhlutafé félagsins. Útistandandi hlutir í félaginu eru því 677.000.000.
Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is.