Traustur rekstur í krefjandi umhverfi



Fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2027 var lögð fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn í dag, þriðjudaginn 10. nóvember. Áætlunin byggir á ábyrgri fjármálastjórn og áframhaldandi uppbyggingu, með áherslu á trausta þjónustu og lágar álögur á íbúa.

Helstu atriði áætlunarinnar:

  • Jákvæð rekstrarniðurstaða: Gert er ráð fyrir 335 milljón króna afgangi af rekstri samstæðunnar, án tekna af sölu byggingarréttar.
  • Traustur rekstur: Veltufé frá rekstri er áætlað 5,4 milljarðar króna og skuldaviðmið 78%
  • Hóflegar álögur: Fasteignagjöld lækka að raunvirði og verða áfram með þeim lægstu á landsvísu. Gjaldskrár hækka um 2,5%.
  • Uppbygging skóla: Framkvæmdir hefjast við nýjan Ísaksskóla í Vatnsendahvarfi og leikskóla í Naustavör.
  • Fjölgun kennara: Veittir verða námsstyrkir til starfsfólks grunnskóla með það að markmiði að fjölga kennaramenntuðu starfsfólki.
  • Ný bókasöfn: Nýtt bókasafn mun opna í Smáralind og undirbúningur hefst við opnun á bókasafni í Kórnum í efri byggðum.

„Ábyrg fjármálastjórn snýst fyrst og fremst um að fara vel með skattfé bæjarbúa og forgangsraða verkefnum með hagsmuni þeirra að leiðarljósi. Þrátt fyrir krefjandi efnahagsaðstæður gerum við ráð fyrir jákvæðri rekstrarniðurstöðu og að skuldir bæjarins haldist óbreyttar. Á næsta ári eru fyrirhugaðar umfangsmiklar fjárfestingar, ekki síst í uppbyggingu nýrra skóla og bættri aðstöðu fyrir börn og fjölskyldur. Við leggjum jafnframt áherslu á að efla menntun með fjölgun kennara, styrkja þjónustu við fjölskyldur og bæta þjónustu við eldri bæjarbúa. Við viljum að góður rekstur skili sér beint til heimilanna. Þess vegna leggjum við áherslu á að halda fasteignagjöldum heimila áfram meðal þeirra lægstu á landinu og takmarka gjaldskrárhækkanir við 2,5%. Með því viljum við létta undir með heimilunum á sama tíma og við leggjum okkar af mörkum til að draga úr verðbólguþrýstingi. Markmiðið er skýrt, að byggja upp öflugt og gott samfélag þar sem metnaðarfull uppbygging, öflug þjónusta og ábyrg fjármálastjórn fara saman. Við ætlum ekki að láta annað koma niður á hinu,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs.

Jákvæð afkoma og hóflegar skuldir í vaxandi bæjarfélagi

Gert er ráð fyrir að rekstrarniðurstaða samstæðu Kópavogsbæjar verði jákvæð um 335 milljónir á árinu 2027 og niðurstaða A-hluta verði jákvæð um 209 milljónir. Ekki er reiknað með tekjum af sölu byggingarréttar, þótt gert sé ráð fyrir lóðaúthlutunum á árinu. Sú varfærna nálgun hefur verið viðhöfð við gerð fjárhagsáætlunar bæjarins frá árinu 2011.

Veltufé frá rekstri samstæðunnar er áætlað um 5,4 milljarðar króna og endurspeglar svigrúm rekstrarins til að standa undir framkvæmdum og afborgunum lána.

Skuldir verða áfram hóflegar þrátt fyrir umfangsmiklar framkvæmdir. Skuldaviðmið er áætlað 77,7%, langt undir lögbundnu viðmiði, og heildarskuldir munu nánast standa í stað að raunvirði, þrátt fyrir framkvæmdir og lífeyrisskuldbindingar.

Fjárhagur bæjarins er traustur og áfram verður lögð áhersla á að skapa rými til að forgangsraða í þágu grunnþjónustu, einkum í mennta- og velferðarmálum.

Áætlað er að íbúum Kópavogs fjölgi um 1,5% og þeir verði 41.036 í árslok 2027.

Fasteignagjöld áfram með þeim lægstu á landinu

Álagningarhlutfall fasteignaskatta á fyrirtæki verður lækkað á árinu 2027 og þannig haldið áfram þeirri stefnu sem hófst árið 2013.

Álagningarhlutfall á íbúðarhúsnæði verður óbreytt og er það vegna þess að fasteignamat á íbúðahúsnæði í Kópavogi hækkar að meðaltali um 1%, sem er minna en undanfarin ár. Miðað við spá Seðlabankans er gert ráð fyrir 3,6% verðbólgu á árinu og munu fasteignagjöld því lækka að raunvirði miðað við þær forsendur.

Fasteignagjöld heimila í Kópavogi eru með þeim lægstu á landsvísu og hafa lækkað að raunvirði undanfarin ár. Útsvarsprósentan helst óbreytt.

Eldri borgarar og örorkulífeyrisþegar munu áfram njóta tekjutengds afsláttar af fasteignasköttum.

Gjaldskrárhækkanir takmarkaðar við 2,5%

Árið 2026 varð Kópavogsbær fyrst sveitarfélaga til að takmarka gjaldskrárhækkanir gagnvart barnafjölskyldum við 2,5%. Með því lagði bærinn sitt af mörkum til að styðja við efnahagslegan stöðuleika og vinna gegn verðbólgu.

Árið 2027 verður gengið lengra. Gjaldskrár bæjarins hækka almennt um 2,5% frá 1. janúar og ekki er gert ráð fyrir frekari hækkunum á árinu.

Menntun og velferð í barnvænu sveitarfélagi

Á árinu 2027 verður rík áhersla á öflugt leik- og grunnskólastarf og góða velferðarþjónustu. Kópavogur er barnvænt sveitarfélag og hagsmunir barna og fjölskyldna þeirra verða áfram leiðarljós í verkefnum bæjarins.

Teknir verða upp námsstyrkir fyrir starfsfólk grunnskóla sem stundar nám í grunnskólakennarafræðum og stuðningsfulltrúanámi. Starfsemi frístundaheimila verður jafnframt styrkt með ráðningu aðstoðarforstöðumanna, með áherslu á læsi og aðstoð við heimanám.

Áfram verður boðið upp á heimgreiðslur til foreldra. Þær hækka í 121.462 krónur og hefjast við 14 mánaða aldur barns í stað 15 mánaða.

Kópavogsbær leggur áfram áherslu á samstarf þeirra sem sinna börnum og fjölskyldum í bæjarfélaginu, þar sem þarfir barnsins eru í forgrunni. Óvissa ríkir þó um fjárframlög ríkisins til innleiðingar farsældarlaganna sem getur haft afleiðingar. Mikilvægt er að tryggja samfellu í þjónustunni svo sú óvissa bitni ekki á börnum og fjölskyldum þeirra. Í þjónustu við eldra fólk verður aukin áhersla á snemmtækan stuðning og samþætta þjónustu. Helgaropnanir í félagsmiðstöðvum eldri borgara verða þróaðar áfram og festar í sessi í samstarfi við notendur. Þá verður áfram unnið að undirbúningi skammtímadvalar fyrir fötluð börn, með það að markmiði að auka þjónustuframboð og stytta bið eftir úrræðinu.

Lengri helgaropnun sundlauga og bætt aðstaða

Opnunartími Salalaugar verður lengdur um helgar og boðið verður upp á skipulagðar miðnæturopnanir í Kópavogslaug. Þar verða settir upp hefðbundinn sánuklefi og infrarauður sánuklefi. Sambærileg aðstaða var opnuð í Salalaug fyrr á þessu ári og hefur fengið afar góðar viðtökur meðal íbúa.

Nýir skólar í byggingu

Umfangsmiklar framkvæmdir eru fyrirhugaðar árið 2027 til að tryggja að innviðir bæjarins mæti þörfum vaxandi samfélags. Áfram verður sinnt viðhaldi eigna og framlög í viðhaldssjóð aukin.

Framkvæmdir hefjast á nýjum leikskóla við Naustavör og nýjum leik- og grunnskóla í Vatnsendahvarfi, sem Ísaksskóli mun reka fyrir Kópavogsbæ.

Þá hefjast framkvæmdir við viðbyggingu Kópavogsskóla til að mæta fjölgun íbúa í nágrenni skólans.

Nýtt bókasafn og menningarmiðstöð í Smáralind

Nýtt bókasafn og menningarmiðstöð verða opnuð í Smáralind árið 2027. Undirbúningur og opnun verða meðal helstu verkefna ársins í menningarmálum. Þar verður skapaður aðgengilegur vettvangur fyrir lestur, menningu, sköpun og samveru íbúa á öllum aldri. Undirbúningur að nýju bókasafni í efri byggðum Kópavogs hefst einnig á árinu.

Stafræn þróun og skilvirkari þjónusta

Kópavogsbær hefur undanfarin ár lagt áherslu á sjálfvirknivæðingu og hagnýta notkun gervigreindar. Áfram verður unnið að því að einfalda þjónustuferla, auka skilvirkni og nýta gögn betur við ákvarðanatöku.

Samhliða fjárhagsáætlun ársins 2027 er þriggja ára áætlun fyrir árin, 2028-2030 lögð fram í fyrri umræðu.

Viðhengi



Pièces jointes

1. Fjárhagsáætlun 2027-Fyrri umræða Kynning bæjarstjóra 1
GlobeNewswire