Sjóvá - Breyting á fjölda eigin hluta félagsins


Á aðalfundi Sjóvá-Almennra trygginga hf. þann 12. mars 2026 var stjórn félagsins veitt heimild til að samþykkja kaupréttaráætlun byggða á 10. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, og gera kaupréttarsamninga við starfsfólk félagsins um kaup á hlutum í félaginu.

Í kjölfar nýtingar kaupréttar samkvæmt kaupréttaráætluninni voru 4.291.179 hlutir afhentir til 104 starfsmanna þann 11. nóvember 2026, á genginu 33,65.

Sjóvá á eftir afhendingu framangreindra hluta samtals 5.882.263 eigin hluti eða sem nemur 0,51% af útgefnu hlutafé.

Nánari upplýsingar veitir Særún Sigurpálsdóttir í síma 858-7997 eða fjarfestar@sjova.is


GlobeNewswire