Félagsbústaðir hf.: Árshlutareikningur 30.9.2026


Árshlutareikningur Félagsbústaða 30.09.2026

Stjórn Félagsbústaða hf. samþykkti árshlutareikning félagsins fyrir fyrstu 9 mánuði ársins 2026 á fundi sínum í dag 24. nóvember.

Sterkur rekstur Félagsbústaða, EBITDA hlutfall hækkar í 47,0% og veltufé frá rekstri stendur undir afborgunum langtímalána

Veltufé frá rekstri stóð undir afborgunum langtímalána og félagið tók ekki ný lán á tímabilinu. Sterk fjárhagsleg staða styður áframhaldandi uppbyggingu félagsins, eiginfjárhlutfall er 52,6% og haldið var áfram fjárfestingum í nýjum félagslegum leiguíbúðum.

Rekstur Félagsbústaða styrkist á fyrstu níu mánuðum ársins 2026. Tekjur jukust um 7,1% frá sama tímabili í fyrra. Reksturinn er áfram sterkur þrátt fyrir neikvæða afkomu vegna verðbótagjalda.

Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu, afskriftir eigna til eigin nota og fjármagnsliði á tímabilinu nam 2.781 m.kr. og rekstrarhagnaðarhlutfallið var 47,0% samanborið við 44,8% á sama tíma árið áður. Þrátt fyrir stöðugan rekstur var rekstrarniðurstaða tímabilsins neikvæð um 1.550 m.kr. Tapið skýrist af litlum hækkunum á fasteignamarkaði og auknum verðbótagjöldum.

Sjóðstreymi Félagsbústaða sýnir að veltufé frá rekstri var 1.658 m.kr. samanborið við 1.468 m.kr. árið áður. Afborganir langtímalána námu 1.240 m.kr.

Helstu kennitölur reikningsins eru:

  • Tekjur tímabilsins námu 5.923 m.kr.
  • Afkoma fyrir matsbreytingu (EBITDA) nam 2.781 m.kr. eða 47,0% af tekjum
  • Veltufé frá rekstri nam 1.658 m.kr.
  • Afborganir langtímalána námu 1.240 m.kr. Veltufé frá rekstri stóð undir þeim og var 418 m.kr. umfram afborganir.
  • Matsbreyting fjárfestingareigna var 515 m.kr. en litlar hækkanir hafa verið á fasteignamarkaði á tímabilinu.
  • Virði fjárfestingareigna í lok tímabilsins er 175.892 m.kr.
  • Eigið fé í lok tímabilsins er 93.351 m.kr.
  • Eiginfjárhlutfall í lok tímabilsins er 52,6%
  • Vaxtaberandi skuldir í lok tímabils nema 69.662 m.kr.

Rekstur og afkoma

Tekjur Félagsbústaða á tímabilinu námu 5.923 m.kr., sem er aukning um 7,1% frá sama tímabili í fyrra. Aukningin skýrist af hækkun leiguverðs vegna verðlagsbreytinga og 1,5% hækkun á leiguverði umfram verðlag sem tók gildi 1.6.2025. Rekstur og viðhald eigna jókst um 106 m.kr. eða um 4,2% á milli ára. Rekstrarhagnaðarhlutfall (EBITDA%) er 47,0% samanborið við 44,8% á sama tíma árið áður.

Efnahagur

Heildareignir félagsins námu 177.445 m.kr. í lok tímabilsins en þær jukust um 0,9% frá ársbyrjun. Fjárfestingareignir jukust um 1,0% eða 1.763 m.kr. á tímabilinu. Nettó fjárfesting var 1.215 m.kr. en matsbreyting og breyting leigueigna var 548 m.kr. Heildarskuldir og skuldbindingar nema 84.094 m.kr. og hækkuðu um 2.355 m.kr. fyrstu 9 mánuði ársins. Eigið fé dróst saman um 737 m.kr. á tímabilinu. Eiginfjárhlutfall í lok tímabils var 52,6% en 53,5% í lok árs 2025.

Þróun eignasafns

Á tímabilinu fjárfestu Félagsbústaðir í nýjum eignum fyrir 1.733 m.kr. og bættust 14 nýjar eignir við eignasafn félagsins. Átta eignir voru seldar á tímabilinu. Áfram var unnið að uppbyggingu á íbúðakjarna við Nauthólsveg 83D sem áætlað er að ljúki undir lok árs 2026.

Fjármögnun

Félagsbústaðir eru með skráð skuldabréf í Kauphöll Íslands og fylgja þeim reglum sem gilda um skráð félög. Samþykktir félagsins kveða einnig á um fyrirkomulag ýmissa þátta í starfseminni og eru þær aðgengilegar á vefsíðu þess ásamt þeim lögum sem gilda um félagið.

Á tímabilinu fjármagnaði félagið sig með stofnframlögum, söluandvirði eigna og auknu hlutafé en ekki nýrri lántöku. Tvö lán að fjárhæð 47 m.kr. voru greidd upp á tímabilinu og var nettó lántaka á tímabilinu því neikvæð um 47 m.kr.

Félagið gerði á tímabilinu nýja samninga um stofnframlög við Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Jöfnunarsjóð sveitarfélaga og Reykjavíkurborg vegna kaupa og nýbygginga að fjárhæð 574 m.kr. Stofnframlög fjármagna almennt 30% af stofnvirði eigna. Til viðbótar getur komið til viðbótarframlag sem nemur 4% af stofnvirði eigna, og geta framlögin því numið allt að 34% af stofnvirði. Öll stofnframlög eru færð sem skuldbinding í efnahagsreikningi. 30% framlagið er uppfært með sömu aðferðafræði og matsbreyting fjárfestingareigna og kemur til greiðslu í formi skuldabréfs þegar önnur fjármögnun vegna kaupa eða bygginga hefur verið uppgreidd. Viðbótarframlagið er ekki háð endurgreiðslukvöð og er fært niður mánaðarlega yfir 50 ára líftíma.

Nánari upplýsingar veitir:

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, framkvæmdastjóri, loa@felagsbustadir.is, sími 520 1500

Viðhengi



Pièces jointes

Árshlutareikningur Félagsbústaða 30.9.2026 Árshlutareikningur Félagsbústaða 30.9.2026 undirritaður
GlobeNewswire