Hagar hf. ákváðu að taka tilboðum fyrir 5.600.000 hluti á genginu 123 í endurkaupum sem tilkynnt var um fimmtudaginn 26. nóvember 2026. Uppgjörsdagur samþykktra tilboða er þriðjudagurinn 1. desember 2026.
Endurkaupin eru gerð í samræmi við viðeigandi lög og reglur, þ. á m. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2016/1052 og lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Hagar hf. eiga 30.815.631 hluti eða sem nemur 2,79% af útgefnu hlutafé að loknum kaupum á þeim bréfum sem um ræðir hér að ofan.
Nánari upplýsingar veitir:
Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Haga hf., í síma 530-5500 eða á geg@hagar.is