Ársreikningur Fasteignafélagsins Stoða hf. hefur að geyma samstæðureikning Fasteignafélagsins Stoða hf. og dótturfélaga þess. Helstu atburðir ársins 2006: " Í árslok 2005 gerði félagið samning um kaup á öllu hlutafé í danska fasteignafélaginu Atlas Ejendomme A/S og er rekstur þess hluti af samstæðureikningi félagsins frá yfirtökudegi sem var 6. janúar 2006. " Í maí 2006 keypti félagið allt hlutafé í Löngustétt ehf. og er rekstur þess hluti af samstæðureikningi félagsins frá 1. maí 2006. Helstu fasteignir þess eru Dalshraun 1, Laugavegur 182, Austurstræti 8 og Póshússtræti 3 og 5 " Á tímabilinu seldi félagið til Baugs Group hf. eignarhluti sína í Högum ehf. og DBH Holding ehf. " Í desember 2006 keypti félagið í gegnum dótturfélag sitt Atlas Ejendomme II A/S verslunarhúsnæði ILLUM á Strikinu í Kaupmannahöfn og verslunarhúsnæði Magasin du Nord í Lyngby, Óðinsvé og Árósum. Rekstur fasteignanna er hluti af samstæðureikningi félagsins frá árslokum 2006. " Í desember 2006 keypti félagið allt hlutafé í FS6 ehf. Helstu eignir þess eru Kringlan 1, 3 og 5. Því fylgir einnig byggingaréttur á Kringlusvæðinu og er rekstur þess hluti af samstæðureikningi félagsins frá árslokum 2006. Lykiltölur, samstæðureikningur: " Hagnaður ársins 2006 nemur 11.395 millj. kr. en nam 2.085 millj. kr. fyrir sama tímabil árið áður. " Rekstrartekjur ársins 2006 námu 6.191 millj.kr en námu 3.468 millj.kr fyrir sama tímabil árið. " Heildareignir samstæðunnar í árslok námu 156.634 millj. kr. en námu 72.538 millj. kr. í árslok 2005. " Eigið fé félagsins í lok árs nam 22.717 millj. kr. en þar af nam hlutafé 2.200 millj. kr. Eigið fé í árslok 2005 nam 10.832 millj. kr. " Eiginfjárhlutfall var 14,5% Lykiltölur - samstæða Allar fjárhæðir eru í millj. kr. Rekstrarreikningur 2006 2005 2004 2003 2002* Leigutekjur 6.191 3.468 3.122 2.305 2.072 Rekstrarkostnaður fasteigna (1.281) (704) (621) (355) (300) Afskriftir 0 0 0 0 (554) Skrifstofu- og stjórnunarkostnaður (583) (288) (259) (117) (235) Rekstrartekjur að frádregnum rekstrargjöldum 4.327 2.476 2.242 1.833 983 Seldar eignir að frádregnu kostnaðarverði þeirra 0 (317) (52) 0 0 Rekstrarhagnaður 4.327 2.159 2.190 1.833 983 Fjármagnsgjöld nettó (7.155) (1.577) (1.485) (1.771) (223) Matsbreyting fjárfestingaeigna og söluhagnaður 16.700 1.346 2.165 12 50 Áhrif hlutdeildarfélaga (174) 318 632 (7) (4) Hagnaður fyrir tekjuskatt 13.698 2.246 3.502 67 806 Tekjuskattur (2.303) (161) (651) (12) (43) Hagnaður tímabilsins 11.395 2.085 2.851 55 763 Sjóðstreymi Handbært fé frá rekstri 2.144 1.513 445 631 587 Fjárfestingarhreyfingar (38.942) (11.508) (4.505) (4.668) (2.548) Fjármögnunarhreyfingar 37.202 9.135 5.268 3.971 1.892 Efnahagsreikningur 31.12.2006 31.12.2005 31.12.2004 31.12.2003 31.12.2002 Fastafjármunir 151.800 58.921 39.982 34.401 23.461 Veltufjármunir 4.834 13.617 5.468 682 808 Eignir samtals 156.634 72.538 45.450 35.083 24.269 Eigið fé 22.717 10.832 9.452 6.856 4.708 Víkjandi lán 2.303 1.684 1.743 1.732 1.460 Tekjuskattsskuldbinding 10.136 2.250 2.158 1.276 728 Langtímaskuldir 98.546 41.894 26.265 21.007 11.645 Skammtímaskuldir, aðrar en víkjandi lán 22.932 15.878 5.832 4.212 5.728 Eigið fé, víkjandi lán og skuldir samtals 156.634 72.538 45.450 35.083 24.269 * Ársreikningur félagsins árið 2002 var gerður í samræmi við lög og góða reikningsskilavenju en tölur síðustu þriggja ára eru í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Ársreikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS) og á grundvelli kostnaðarverðs, að því undanskildu að fjárfestingareignir eru færðar á gangvirði. Breytingar á gangverði fjárfestingareigna eru færðar undir liðnum matsbreyting fjárfestingareigna í rekstrarreikningi, en matsbreytingin nam 16.212 milljónum króna á árinu. Meginhluti þeirrar fjárhæðar er tilkominn vegna hækkunar á leiguverði sem einkum byggist á hækkunum á verðlagsvísitölum og erlendum myntum sem bundnar eru í leigusamningum félagsins. Arður og aðalfundur Fasteignafélagsins Stoða hf: Stjórn félagsins staðfesti ársreikninginn þann 16. febrúar 2007 og lagði til að greiddur yrði 1.000 millj. kr. í arð til hluthafa á árinu 2007. Aðalfundur félagsins verður haldinn miðvikudaginn 28. febrúar næstkomandi kl 16:00 á Nordica Hótel. Um Stoðir og horfur: Fasteignafélagið Stoðir hf. er fasteignafélag sem sérhæfir sig í útleigu og rekstri atvinnuhúsnæðis. Fasteignir félagsins eru verslunarhúsnæði, skrifstofur, hótel og vörugeymslur og er fermetrafjöldinn yfir 600 þúsund. Fjöldi leigutaka eru rúmlega 1.000. Meðal stærstu leigutaka má nefna Haga hf. Magasin Du Nord, ILLUM, Flugleiðahótel og Fasteignir Ríkissjóðs. Nýtingarhlutfall fasteigna er um 97%. Horfur í rekstri félagsins eru góðar. Nánari upplýsingar veitir: Jónas Þór Þorvaldsson, framkvæmdastjóri félagsins í síma: 575 9000
Fasteignafélagið Stoðir - Ársuppgjör 2006
| Source: Landic Property hf.