Ársreikningur 2006 Fjárhæðir í þús. Kr. Rekstrarreikningur 1.1.-31.12.2006 1.1.-31.12.2005 1.1.-31.12.2004 Rekstrartekjur 2.393.435 2.062.487 1.721.414 Rekstrargjöld 2.162.302 1.899.689 1.571.185 231.133 162.798 150.229 Fjármagnsgjöld 58.140 65.817 80.023 Hagnaður af reglulegri starfsemi fyrir skatta 172.993 96.981 70.206 Tekjuskattur 31.139 17.457 12.693 Hagnaður af reglulegri starfsemi eftir skatta 141.854 79.524 57.513 Efnahagsreikningur 31.12.2006 31.12.2005 31.12.2004 Eignir samtals 771.027 734.776 817.368 Eigið fé 329.985 153.131 73.607 Fjárhagsleg þróun: Veltufé frá rekstri 170.595 100.277 81.867 Handbært fé frá rekstri -49.986 55 0 Kennitölur: Veltufjárhlutfall 3,13 3,27 3,52 Eiginfjárhlutfall 42,8% 20,8% 9,0% Ársreikningur Kjalarvogs ehf. 2006 Ársreikningur Kjalarvogs ehf. fyrir árið 2006 hefur í dag, 9. mars 2007, verið staðfestur af stjórn og framkvæmdastjóra félagsins. Sömu reikningsskilaaðferðum var beitt og árið áður. Kjalarvogur ehf. er dótturfélag Húsasmiðjunnar h.f., sem á allt hlutaféð, og er ársreikningurinn hluti af samstæðureikningi móðurfélagsins. Afkoma ársins 2006 Hagnaður Kjalarvogs ehf. árið 2006 nam 141,8 m.kr. Rekstrartekjur tímabilsins námu 2.393 m.kr., vörunotkun 1.521 m.kr. og annar rekstrarkostnaður 641 m.kr. Enginn starfsmaður starfaði hjá félaginu á tímabilinu, en Húsasmiðjan hf. sá um daglegan rekstur. Fjármagnsgjöld tímabilsins námu 58 m.kr. Veltufé frá rekstri nam 170 m.kr. Heildareignir Kjalarvogs ehf. 31.12.2006 voru bókfærðar á 771 m.kr. Heildarskuldir félagsins voru um 441 m.kr. 31.12.2006 og þar af námu langtímaskuldir um 187 m.kr. Veltufjárhlutfall í lok tímabilsins var 3,13. Eigið fé Kjalarvogs ehf. þann 31.12.2006 nam 330 m.kr og eiginfjárhlutfall var 42,8%. Framtíðarhorfur Tilgangur félagsins er innflutningur, heildsala og smásala á neytenda- og iðnaðarvörum, ásamt annarri starfsemi, sem af því leiðir. Ágætlega lítur út með reksturinn á næstu misserum. Útlit er fyrir áframhaldandi aukningu eftirspurnar og markaðsstaða félagsins er ágæt.
Kjalarvogur - Ársuppgjör 2006
| Source: Húsasmiðjan hf.