Baugur Group hefur keypt allan eignarhlut félaganna Talden Holding S.A. og Orchides Holding S.A., í eigu Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssonar. Um er að ræða kaup á 26,3% eignarhlut í Högum og er hlutur Baugs Group í félaginu því orðinn 95%. Þá eru þau 5% sem eftir eru í fyrirtækinu í eigu félagsins sjálfs og starfsmanna. Kaupin miðast við 28. febrúar síðastliðinn. Pálmi og Jóhannes, sem báðir voru stjórnarmenn í Högum, hafa við þessi tímamót látið af stjórnarsetu í Högum.
Recommended Reading
-
Í viku 28 keyptu Hagar hf. 980.000 eigin hluti að kaupverði kr. 119.560.000 eins og hér segir: DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr.)Eigin hlutir eftir...
Read More -
Hagar hf. luku í dag, 10. júlí 2026, sölu á nýjum skuldabréfaflokki HAGA 130629 1. HAGA 130629 1 er almennur skuldabréfaflokkur sem ber breytilega vexti tengda 1 mánaðar REIBOR að viðbættu 1,00%...
Read More