Baugur Group hefur keypt allan eignarhlut félaganna Talden Holding S.A. og Orchides Holding S.A., í eigu Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssonar. Um er að ræða kaup á 26,3% eignarhlut í Högum og er hlutur Baugs Group í félaginu því orðinn 95%. Þá eru þau 5% sem eftir eru í fyrirtækinu í eigu félagsins sjálfs og starfsmanna. Kaupin miðast við 28. febrúar síðastliðinn. Pálmi og Jóhannes, sem báðir voru stjórnarmenn í Högum, hafa við þessi tímamót látið af stjórnarsetu í Högum.
Recommended Reading
-
Í viku 27 keyptu Hagar hf. 196.000 eigin hluti að kaupverði kr. 24.108.000 eins og hér segir: DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr.)Eigin hlutir eftir...
Read More -
Á aðalfundi Haga hf. sem haldinn var þann 21. maí 2026 var samþykkt að heimila félaginu að kaupa á næstu 18 mánuðum hlutabréf í félaginu fyrir allt að 10% af heildarhlutafé félagsins í þeim tilgangi...
Read More