Í dag Miðvikudaginn 2. maí heldur Össur hf. upplýsingafundi fyrir fjárfesta og markaðsaðila. Klukkan 12:00 að staðartíma verður haldinn símafundur á ensku. Unnt verður að hlusta á fundinn á heimasíðu Össurar: www.ossur.com. Vinsamlegast hringið í eftirfarandi símanúmer til að taka þátt í fundinum: Símanúmer fyrir Evrópu: +44 (0) 20 7162 0025 Símanúmer fyrir Bandaríkin: +1 334 323 6201 Einnig er unnt að senda fyrirspurnir til fundarins, sem haldinn er á ensku, með tölvupósti á investormeeting@ossur.com Klukkan 16:15 að staðartíma verður opinn fundur með stjórnendum fyrirtækisins á Grand Hóteli við Sigtún. Á fundinum munu Jón Sigurðsson, forstjóri og Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri, fara yfir rekstur tímabilsins. Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á heimasíðu Össurar: www.ossur.com og á vef Kauphallar Íslands, www.icex.is jafnhliða fréttatilkynningunni.