- Framkvæmdastjóraskipti


Aðalsteinn Helgason hefur látið af störfum sem framkvæmdastjóri
Síldarvinnslunnar hf. og í stað hans hefur Gunnþór Ingvason verið ráðinn
framkvæmdastjóri.   Jóhannes Pálsson hefur einnig verið ráðinn framkvæmdastjóri
erlendrar starfsemi ásamt því að hafa umsjón með markaðs, sölumálum og vinnslu. 
Aðalsteinn hefur verið ráðinn til starfa hjá Katla Seafood sem nýlega hefur
keypt erlenda starfsemi Sjólaskipa hf í Hafnarfirði.  Aðalsteinn var ráðinn
framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar hf. í ársbyrjun 2006  “Þessi tími í
Neskaupstað hefur verið mjög ánægjulegur. Fyrirtækið stendur vel, rekstur þess
og fjárhagur er traustur. Ég vil sérstaklega þakka samstarfsfólki mínu hjá
Síldarvinnslunni hf. og stjórn þess ánægjuleg samskipti.” segir Aðalsteinn
Helgason 

Stjórn Síldarvinnslunnar hf. þakkar Aðalsteini vel unnin störf og óskar honum
velfarnaðar á nýjum vettvangi. Um leið býður stjórnin Gunnþór Ingvason og
Jóhannes Pálsson velkomna til nýrra starfa hjá Síldarvinnslunni hf. 

Jóhannes, sem er 48 ára er menntaður véla- og rekstrarverkfræðingur, var ráðinn
til starfa hjá Síldarvinnslunni hf. 23. mars 2001 og tók þá við starfi
framkvæmdastjóra landvinnslu. Árið 2006 tók hann einnig við starfi
framkvæmdastjóra SR-Mjöls hf., sem er dótturfyrirtæki Síldarvinnslunnar hf. og
sér um sölu á mjöli og lýsi. 
Jóhannes var áður framkvæmdastjóri Hönnunar og ráðgjafar hf á Reyðarfirði.

Gunnþór, sem er 39 ára er menntaður iðnaðartæknifræðingur, var ráðinn til
starfa hjá Síldarvinnslunni hf. í ársbyrjun árið 2003 við samruna
Síldarvinnslunnar hf. og SR-Mjöls hf. 1. janúar 2003.  Fyrst var hann ráðinn
sem aðstoðarmaður forstjóra en tók við starfi útgerðarstjóra 15. apríl 2005.
Gunnþór var áður starfsmaður SR-Mjöls hf og hafði þar yfirumsjón með
hráefnisinnkaupum og stýringu á hráefni til verksmiðja félagsins. 

Fréttatilkynning frá Síldarvinnslunni hf. þriðjudaginn 5. júní 2007. Nánari
upplýsingar gefur Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórnarformaður Síldarvinnslunnar
hf. í síma 460 9010
GlobeNewswire